miðvikudagur, nóvember 20, 2002

Nú er ég búin að skrifa inn í dagbókina hjá Nonna "Blogga í dag" þannig að nú hlýtur eitthvað að fara að gerast. Fékk þessa fínu hugmynd hjá mömmu að skrifa bara í dagbókina hans ef það er eitthvað sem þarf að gera því skipulagt fólk (eða gleymið) færi yfirleitt samviskusamlega eftir því sem stendur í dagbókinni. Mamma er uppfull af góðum hugmyndum : ) Annars er nú hellingur annað sem mér dettur í hug að ég geti skrifað ef þetta virkar. T.d. "Kaupa Sherling kápuna í Express handa Brynju" og "Bjóða Brynju út að borða í kvöld".

Annars get ég upplýst lesendur þessarar síðu um það að ástæðan fyrir því að Nonni bloggar svona lítið er sú að hann eyðir öllum sínum stundum í tölvunni í það að tefla á Yahoo og hefur þ.a.l. ekki tíma til að blogga. Þeir, sem hafa áhuga á að skora hann á hólm í skákinni geta sent póst hingað.

Ég á lunchdeit með Lenu í hádeginu en hún situr nú alla daga uppi á bókasafni að læra fyrir GRE. Hulda Clara fékk nefnilega inni á leikskóla hérna rétt hjá í einn mánuð meðan mamma hennar lærir. Fyrsti dagurinn hennar í dag. Ég er voða spennt að vita hvernig gengur hjá henni en ef ég þekki hana rétt mun hún sitja stillt og góð á gólfinu og horfa á krakkana leika sér.

Og svo í framhaldi af síðasta bloggi. Mér finnst nefnilega þessar svörtu píur alveg stórmerkilegar (er ég nokkuð "politically incorrect" að tala um þetta?). Ég hef nefnilega tekið eftir því að þeim finnst sumum flott að vera með eins og eina gulltönn. Já, það er yfirleitt önnur tönnin við hliðina á framtönnunum sem er bara gulllituð. Hef séð nokkrar svona svo þetta er greinilega tískufyrirbæri. Hvað um það, hún Brandielle sem afgreiðir mig stundum hérna úti í Publix gekk skrefinu lengra í þessu. Hún er svona tvítug og ég er að segja ykkur það að hún er með gulltennur á öllum tönnum, uppi og niðri! Ég ætla bara rétt að vona að hún geti tekið þetta af...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home