Aumingja Catherine Zeta-Jones (33). Greyið konan brast í grát í gær þegar hún lýsti því yfir fyrir rétti þvílíkum harmi ósamþykktar myndir, sem birtust af henni úr brúðkaupinu hennar í Hello, hefðu valdið henni. Þau skötuhjúin, hún og Michael Douglas (58), seldu tímaritinu OK einkarétt á myndum úr brúðkaupinu fyrir eina milljón sterlingspunda en Hello birti myndir úr brúðkaupinu líka og nú eru þau að lögsækja blaðið.
Ein ástæðan fyrir harminum er sú að þetta hafi verið innrás í einkalíf þeirra hjóna á mjög prívat stundu (það voru 350 manns í brúðkaupinu og þau seldu myndbirtingarétt). Aðalástæðan var samt sú að hún virtist vera of "stór" á sumum myndunum í Hello. Vesalings C.Z-J. var búin að púla í leikfimi (sem henni finnst mjög leiðinlegt) til að ná af sér kílóum eftir barnsburð fyrir brúðkaupið og svo birtast þessar hryllingsmyndir af henni í blöðunum. Svo passaði hún sig líka að taka það fram að þetta snerist sko alls ekki um peninga. Hún gerði sér grein fyrir því að í augum flestra viðstaddra væri ein milljón punda mikill peningur en í augum þeirra hjóna væri þessi peningur bara skiptimynt. Svo er hún tilnefnd til Óskarsverðlauna í þokkabót!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home