laugardagur, febrúar 08, 2003

Fór á Chicago í gær með Lenu og þetta var bara frekar góð mynd. Þ.e.a.s. ef maður fílar söngleiki á annað borð. Hún náði ekki alveg hæðum Moulin Rouge en fór ansi langt og aðalleikararnir komu skemmtilega á óvart. Mér hefur t.d. alltaf fundist Catherine Zeta-Jones ekki getað leikið og hef alltaf haldið að hún fái bara að vera með af því að hún er svo ótrúlega falleg en í myndinni sýnir hún að hún getur a.m.k. sungið og dansað. René Zellweger er líka ofsalega góð og er alltaf að vaxa í áliti hjá mér.

Annars er allt að verða vitlaust í Atlanta um helgina. Það er all-star leikur í NBA deildinni hérna um helgina og celebin flykkjast í bæinn til að horfa á. Justin Timberlake, Janet Jackson, Nelly, Faith Hill & Tim McGraw to name a few. Öll hótel full, partý út um allt og brjáluð umferð þar sem fullt af utanbæjarfólki er hérna. Ég er að spá hvort ég eigi að læra fyrir queuing theory prófið mitt eða leggjast fyrir utan hótel um helgina og spotta fræga fólkið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home