Gott dæmi um hvað Ameríkanar geta verið steiktir:
Ég hef lent í því þrisvar sinnum á einni viku þegar ég segist vera í verkfræði að fá á móti "Oh my god, you're smart!" Hvað er málið með það?!! Ein stelpan gekk meira að segja svo langt að bæta því við að hún væri "ekki klár og ynni bara í sölustarfi á hóteli". Hvað á maður að segja við svona?
1. Já ég veit.
2. Nei, ég er ekkert klár. Eiginlega bara frekar heimsk.
3. Takk... uh
Þetta er náttúrulega sérstaklega asnalegt þar sem maður var að hitta viðkomandi í fyrsta skipti og manneskjan hefur ekki hugmynd um hvort maður sé klár eða ekki. Það að maður sé að læra eitthvað fag í skóla segir náttúrulega ekkert um gáfnafar viðkomandi. Ég veit ekki hvort öðrum Könum finnist þetta bara fínt en íslenska hófsemin gerir það að verkum að mér finnst þetta bara vandræðalegt.
Ef einhver veit um gott svar við svona kommentum þá vinsamlega láta mig vita.
Ein í vanda.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home