Í gær fórum Brynja á djammið. Kvöldið byrjaði með því að ég eldaði sérréttinn minn, grænmetissúpa a la Nonni, og fékk náttúrulega mikið hrós fyrir. Þar næst fórum við í partý sem húsfélagið okkar stóð fyrir og fór það fram á stað sem heitir Leopard Lounge og er alveg sérlega "chesee". Það helsta sem gerðist þar að það var tilkynning að sundlaugin sem á að byggja á þakinu hjá okkur verður tilbúin í byrjun júlí og við getum því kælt okkur í henni þegar við komum aftur til Atlanta í haust, við verðum sum sé heima í sumar. Eftir einn drykk á Leopard lounge héldum við skötuhjúin á Twisted Taco þar sem Brynja hélt áfram að hlaða í sig hvítvíninu en ég komst upp á bragðið með að drekka bananamargarítur. Seinna um kvöldið komu bættust svo nokkrir strákar úr QCF prógramminu mínu í hópinn, en engin stelpa, Brynju til mikils ama. Ég átti sérlega skemmtilegar samræður við einn Indverja úr hópnum um tilgang lífsins og merkilegt hvað margarítur hjálpa manni að sjá lífið í skýru ljósi. Indverjinn hélt því reyndar fram að til að geta orðið hamingjusamur að þá verði maður að fylgja þeim venjum sem ætlast er til af manni og hluti af því er að reyna allt sem maður getur til að borga foreldrum sínum, og guði náttúrulega, fyrir allt sem þau hafa gert fyrir mann. Samkvæmt honum getur maður reyndar aldrei endurgoldið foreldrum sínum allt sem þau hafa gert, sama hversu mikið maður reynir. Hann heldur því hins vegar fram að maður geti hugsanlega endurgoldið kennurum sínum fyrir það sem þeir hafa kennt manni og máli sínu til stuðnings nefndi hann dæmi um mann sem hafði lært að skjóta af boga og þegar hann var fullnema að þá skar hann af sér þumalinn og gaf kennaranum sínum. Með þessu endurgreiddi hann kennaranum sínum að fullu en gat hins vegar aldrei skotið af boga aftur. Það má svo kannski minnast á það að hann mun fara heim til Indlands í sumar þar sem foreldrar hans verða búin að velja ca. 10 hugsanlegar brúðir sem hann getur svo valið á milli.
Jæja, nóg af rausi, ég ætla að skella mér í Kringluna með henni Brynju og leyfa henni að velja sér hluta af afmælisgjöfinni sinni.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home