Ég er jafnvel að spekúlera í að kaupa mér nýja Christinu Aquilera diskinn. This girl can sing! Fólk hefur hvort sem er ekkert álit á tónlistarsmekknum mínum.
Ef einhver veit um sumarstarf fyrir kláran, sætan og skemmtilegan iðnaðarverkfræðing má sá hinn sami senda póst hingað. Kannski dáldið sein af stað að leita en betra er seint en aldrei.
Annars er planið fyrir kvöldið að fara til Gests og Lenu og horfa á American Idol. Við erum algjörlega út úr öllum samræðum hérna því við vitum ekkert hver er hvað í Idol en nú á semsagt að bæta úr því. Í leiðinni ætlum við að koma við á Taco Bell og ná okkur í kvöldmat. Mmmm.... skil ekki af hverju Taco Bell er ekki komið til Íslands.
Hins vegar er mjög skiljanlegt hvað er mikið af feitum Ameríkönum. Heil máltið á stöðum eins og McDonalds og Taco Bell kostar það sama og þrír tómatar úti í búð. Þetta er ekki grín, ég á kvittanir sem sanna þetta! Svo er líka allt hérna þannig að fólk er alltaf hvatt til að kaupa aðeins meira og t.d. munar 70 sentum á því að kaupa 6 kleinuhringi og 12 úti á Krispy Kreme. Þetta er um 10% hærra verð fyrir helmingi fleiri kleinuhringi og auðvitað kaupa allir 12 og éta svo allt saman. Svo má líka ekki gleyma því að það er opið 24 tíma sólarhringsins á Krispy Kreme og bílalúgan er alltaf opin svo maður getur alltaf rennt við og keypt sér "dozen".

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home