laugardagur, mars 29, 2003

Það verður að afsaka bloggleysið í gær en við erum löglega afsökuð þar sem vinkona okkar var í heimsókn hjá okkur í allan gærdag. Það var ekkert smá gaman hjá okkur. Við fórum í kerrunni upp í skóla og eyddum deginum þar. Hún skreið út um allt og var algjör engill.

Helgin verður erfið þar sem við þurfum bæði að læra helling sem væri allt í lagi svosem nema að veðrið er alveg fullkomið og þá er ekki hægt að sitja inni og læra. Kannski ég skreppi upp á þak í sólbað í svona klukkutíma.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home