Fór í þetta fína facial í gær með Lenu. Kom okkur reyndar á óvart að við áttum að fara úr fötunum og klæðast í einhvern serk áður en gamanið byrjaði. Kom svo í ljós að það var ekki bara andlitið sem fékk meðferð heldur líka háls, herðar, hendur og hársvörður. Eftir þetta fengum við gellurnar, mjúkar í framan eins og barnsrass, okkur að borða á dáldið góðum stað sem ég fer örugglega aftur á.
Á meðan við stelpurnar vorum úti rasskellti Nonni hann Gest í FIFA playstation (segir Nonni) í fjóra klukkutíma.
Eftir þetta fórum við Nonni svo í smá afmælispartý hjá vinkonu minni. Spurning hvort botninn hafi verið dottinn úr því þegar við komum en það var allavega frekar dauflegt um að litast þegar við komum. Klukkan var samt ekki nema hálf tólf! Svo var þarna ansi athyglisverður Rússi sem ég þekki aðeins en hann dreif sig fljótlega eftir að við komum til þess að fara á djammið í Buckhead... einn! Já, hann stundar það víst mikið að fara einn á djammið í sínum heiðgula leðurjakka. Held að Rússar séu frekar spes stundum.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home