Þá er springbreikið búið og við lærðum ekki neitt! Vorum með mikil plön fyrir fríið en ég er búin að ákveða að vera ekki með sammara og líta bara svo á að ég komi fersk, endurnærð og tvíefld til leiks eftir góða hvíld.
Í gærkvöldi héldum við upp á það að góða veðrið er að aukast og borðuðum í fyrsta skipti úti á þessu ári. Með úti þá meina ég undir beru lofti... víííí. Mér finnst alltaf jafn huggulegt að sitja úti á góðri kvöldstund og borða með skemmtilegu fólki (í þessu tilviki Nonna) og vera ekki kalt!
Nonni gleymdi að minnast á það í ferðasögunni að hótelið hefði verið úti í rassgati, það var eiginlega úti í mýrinni, í svona iðnaðarhverfi, 20 mínútna bílferð frá bænum og þvílíkur subbuskapur! Í anddyrinu mætti manni þessi líka viðbjóðslega fúkkalykt, málningin var flögnuð alls staðar og það voru hár í baðkerinu. Fyrir þetta borgar maður svo $120 fyrir nóttina (venjulegt verð er svona $25). Ekki eins og maður sé eitthvað mikið að hanga á hótelinu á Mardi Gras en samt...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home