laugardagur, apríl 12, 2003

Sæll sæll hvað Cirque du Soleil var flott í gær. Ég sat stundum bara og gapti því það var alveg ótrúlegt hvað þetta fólk gat gert. Hlýtur að vera ótrúlegt að hafa fullkomna stjórn á hverjum einasta vöðva í líkamanum eins og þetta fólk hafði.

Helgin verður skemmtileg... NOT! Verkefnaskil í næstu viku á nokkrum stórum verkefnum svo það verður setið stíft við. Nonni gaf mér Coming to America á DVD í gær en fyrir nokkrum mánuðum fylltist ég mikilli löngun til að sjá hana en það er hreinlega ekki hægt að leigja hana á leigunum hérna. Við ætlum semsagt að horfa á hana í kvöld og svo ef mér gengur vel í dag (og fer að hætta þessu nethangsi) kíki ég kannski á The Dogwood festival í Piedmont Park en það er mikil tónlistarhátíð, markaður og svoleiðis. Sólin er loksins aftur farin að skína eftir rigningarviku svo það ætti að vera gaman að kíkja í garðinn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home