þriðjudagur, ágúst 10, 2004

Auglýst eftir myndum

Jájá, nú á bara að misnota sér síðuna til framapots og í sjálfselskum tilgangi...

Hér með er auglýst eftir myndum úr brúðkaupinu góða þann 17. júlí síðastliðin. Nú á að setja saman "The mother of all photo albums" og þetta er ÞITT tækifæri til að koma þínum myndum að.

Einnig vantar algjörlega myndir úr steggjun eiginmannsins... af einhverjum ástæðum hefur þeim ekki verið veifað mikið.

Áhugasamir geta sent sitt framlag í tölvupósti.

Respect,
Brynní

6 Comments:

Blogger Brynja said...

Jahérna, það rignir alldeilis yfir mig myndum (og kommentum) þessa dagana... eða þannig.

Ef þetta virkar ekki mun ég senda út tölvupósta á valda aðila og ef það virkar ekki þá mun ég senda hann Þór Jósepsson, fulltrúa minn á Íslandi, til að ná í myndirnar.

Hmmm... ég er að sjá það nú að kannski eru þessi lélegu viðbrögð því um að kenna að ég skamma lesendur mína (ef einhverjir eru) og hóta að senda á þá handrukkara... makes one wonder. Næsta færsla verður sæt og góð og skemmtileg.

8:35 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þær myndir sem voru ekki fáránlegar eru á síðunni minni. Ég er ekki alveg nógu dugleg í myndatökunum. Annars finnst mér Þór bara sætur og þú mátt alveg senda hann til mín (eða ekki).
Knús,
Annie

1:26 e.h.  
Blogger Brynja said...

Ég var einmitt búin að ná í þínar myndir af síðunni þinni... fékk ekkert leyfi höfundar til þess. En þær eru mjög flottar, sérstaklega úr partýinu.

5:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Viltu fá myndirnar okkar sendar eða tekur þú þær af síðunni okkar ?
kv. Baldur

9:47 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hæ

gæsa myndirnar eru hér:
http://www.mit.edu/~margret/myndir/galleries/gaesun_brynju/
kv.
mvb

9:58 f.h.  
Blogger Brynja said...

Frábært, takk fyrir þetta. Búin að downloada af okkar.com og möggu. Takk fyrir að láta mig vita Magga og sjáumst í Boston!

11:35 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home