miðvikudagur, september 28, 2005

Klukkuð

Hver þremillinn, mér varð að ósk minni og var klukkuð af henni Önnu.

Here goes...
1) Ég bjó í Svíþjóð í sex ár og dýrka land og þjóð.
2) Ég er haldin sjúklegum valkvíða þegar kemur að öllum húsbúnaði og innréttingum.
3) Ég sé eftir þremur ákvörðunum sem ég hef tekið.
4) Uppáhaldsþátturinn minn þessa dagana er breska sápan Cutting It á fimmtudagskvöldum á RÚV.
5) Ég var klukkutíma að skrifa þennan lista.

Ég ætla hins vegar ekki að klukkka fleiri. Enda var ég örugglega síðasta manneskjan á Íslandi til að vera klukkuð.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hvaða þrjú atriði eru þetta? Komdu með þau!

2:47 e.h.  
Blogger Brynja said...

Ég skal segja þér þau einhvern tíman yfir hvítvínsglasi.

4:25 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home