Mmmm... kalkúnninn í gær heppnaðist ofsalega vel. Við gerðum allt heila klabbið, kalkún, fyllingu, graskesböku, trönuberjasósu og sætar kartöflur. Gestur var hetja dagsins þegar hann fór inn í kalkúninn og náði í hálsinn og hjartað (sem við notuðum ekki í sósuna) og setti fyllingu í hann. Fólk lét orð falla eins og "Það mætti nú bara bjóða forsetanum (forseta Bandaríkjanna) í þennan mat" og "Besti kalkúnn sem ég hef smakkað". Ég er ekkert smá ánægð með okkur!
Svo verður bara lært það sem eftir er af fríinu... vei!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home