Afsakið bloggleysið síðustu daga. Við erum í prófum í næstu viku og erum bara frekar morkin í próflestri þessa dagana. Við lofum þó bót og betrun eftir fimmtudaginn 12. Des. Þangað til verður eitthvað lítið bloggað (geta ekki nýyrðasmiðirnir í fjölskyldunni fundið upp eitthvað betra orð en blogg? Það er kannski alveg ágætt).
Fengum annars pakka frá Íslandi í dag en vinafólk moms og pops er hérna og kom færandi hendi. Skelltum nokkrum pökkum á þau fyrir þá sem verða ekki á Íslandi um jólin og verða þ.a.l. að fá sína pakka áður en þau fara af landi brott. Gott ef það var ekki afmælispakki þarna líka ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home