laugardagur, maí 03, 2003

Ég þakka kærlega fyrir afmæliskveðjurnar!

Afmælisdagurinn byrjaði á sérlega skemmtilegu prófi í Java en batnaði um kveldið á rokkhátíðinni Mucis Midtown. Reyndar fór hátíðin brösulega af stað hjá okkur því um leið og við komum inn á svæðið skall á þetta svaðalega þrumuveður og við urðum holdvot á nokkrum sekúndum. Það kom sér þá vel að búa við sömu götu og hátíðin og héldum við því bara heim og keyptum kassa af bjór og supum svo íslenskt brennivín. Tveimur tímum seinna var svo búið að stytta upp og þá skelltum við okkur aftur út. Við náðum rétt í endann á Sheryl Crow og sáum svo Live fara á kostum - að mínu mati allavegana.

Við Brynja komum til Íslands á mánudaginn og hlökkum náttúrulega til að sjá ykkur öll.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home