Nöldurhornið
Eins og það er nú gott að vera komin heim þá einstaka hlutur sem pirrar mig hérna á Íslandi. Eitt af því er þjónustulund afgreiðslufólks, eða réttara sagt ekki þjónustulundin. Hér eru tvö dæmi og nota bene, ég er aðeins búin að vera hérna í rúma viku!
Ég fór í Kaffitár um daginn til að kaupa kaffi. Ég pantaði einn pakka af Kosta Ríka kaffi, kaffi vikunnar sem er auglýst uppi á vegg stórum stöfum á 410 krónur. En nei, þá er það ekki til svo ég bið bara um kaffi sem er svipað því. Hún stingur upp á Mokkatári sem ég samþykki og hún malar það fyrir mig. 490 krónur takk... Þá er ég látin borga 80 krónur fyrir að hafa ekki fengið það sem ég pantaði! Skítt og laggó með 80 kallinn en mér hefði þótt sjálfsagt að bjóða mér kaffi að eigin vali fyrir sama verð fyrst þau átti ekki það sem ég pantaði.
Hitt dæmið er öllu verra. Það voru pantaðar myndir úr ljósmyndaseríu af okkur systkinunum í vetur hjá Bonna ljósmyndara. Myndirnar í albúminu eru ofsa fínar og eins aðrar eftirtökur sem gerðar hafa verið. Nema hvað, þessar myndir eru yfirlýstar. Svo yfirlýstar að það gat enginn hugsað sér að hengja þær upp á vegg. Og fyrir fimm myndir borgum við 19 þúsund krónur.
Ég fer með myndirnar um daginn til að láta laga þær. En hmmm nei, hann er nú ekki sammála því að þær séu yfirlýstar. Hann hefur pottþétt séð það líka en ekki nennt að laga þær. Svo er hann með alls konar nöldur, að koma sumarfrí og að hann séu nú að fara í veiði og hafi ekki tíma til að standa í svona og eitthvað rugl... og gæti mér staðið meira á sama?!! Ég þurfti semsagt að sleikja hann geðveikt upp og hlusta á mótmæli og væl til þess að fá þá sjálfsögðu þjónustu að myndir sem við borguðum tugi þúsunda fyrir séu a.m.k. með sömu gæði og ef við hefðum skannað inn myndirnar sjálf og prentað þær út. Endaði með því að hann tók þær aftur en tók fram að ég skýldi nú ekki búast við að þetta yrði efst á listanum hjá honum og bað mig að tékka eftir mánuð í fyrsta lagi. Fyrst hann ætlar að laga þetta, gat hann ekki sleppt þessu nöldri.
Ég skil hreinlega ekki að búðir og fyrirtæki hér skuli ekki sjá sér hag í því að bjoða upp á almennilega þjónustu. Er þetta bara ég eða eru Íslendingar dónar?
P.s. 4 dagar í Eurovision...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home