mánudagur, maí 12, 2003

Við höfum verið löt við að uppfæra síðuna síðan við komum heim enda kannski minni þörf á því þar sem við erum á staðnum. Ástæðan er einfaldlega sú að við erum ekki með netið heima og erum því illa nettengd.

Annars var helgin góð fyrir utan vonbrigði með kosningaúrslitin, bæði að stjórnin hafi haldið velli og að Ingibjörg Sólrún hafi ekki komist inn á þing. Ég er samt sátt við hvað Sjálfstæðisflokkurinn tapaði miklu fylgi og
verður vonandi til þess að flokkurinn hætti þessari sjálfumgleði sem hefur einkennt flokkinn, sérstkalega ónefndan formann, síðan í síðustu kosningum. Samfylkingin náði líka að stimpla sig inn sem mótvægi við Sjallana sem er mjög gott og gengur vonandi enn betur næst. Ég verð líka að segja að mér finnst hrikalegt að nú sé flokkur sem er með 18% fylgi á landsvísu að gera tilkall til forsætisráðherrastólsins og fái svo kannski helming ráðherrasæta. Rétt þætti mér að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur stofnuðu stjórn (best væri að sjálfsögðu að Ingibjörg Sólrún yrði forsætisráðherra) en það væri stjórn sem myndi endurspegla vilja kjósenda.
Ég er líka ánægð með hvað meðalaldur þingmanna lækkaði mikið en ekki sátt við að konum fækkaði. Mér finnst að Alþingi eigi að endurspegla þjóðina og með langt innan við helming þingmanna kvenkyns er það að sjálfsögðu ekki að gerast. En þetta er það sem fólkið kaus...

Hvað um það, við héldum samt upp á kosningarnar með því að kíkja út á lífið. Fórum á kosningavöku Vinstri-Grænna en það var eini flokkurinn, fyrir utan Nýtt afl sem var á Sí Senjor, sem var með sína kosningavöku í göngufjarlægð frá okkur. Auk þess voru Magga Stína og Hringirnir að skemmta þannig að þetta var mikið stuð. Ég var reyndar pínu þreytt því að við fórum í svo fínt fiskisúpu og hvítvínsboð til Önnu og Freys á föstudagskvöldið og ég var eiginlega enn að jafna mig á því á laugardaginn. En það er gaman og gott að vera komin heim og frábært að hitta alla vinina og fjölskylduna :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home