Sumir að missa sig í augnablikinu?
Listakona var að fá milljón í verðlaun. Í umsögn dómnefndar stendur m.a.
"Einkenni verka X er hin beina og milliliðalausa mótun efnisins. ... Þessi viðteknu efnistök öðlast nýja tilvist í meðförum X. Atburðarás leiksins tekur á sprett í ærslafullri leikgleði augnabliksins, en hverfist stundum yfir í andstæðu sína, - án þess að undirtónn hins grátbroslega hverfi."
Eruði að grínast?

4 Comments:
Hahahahahaha
Ég hélt reyndar að listakonan X hefði verið að grínast þegar ég sá verkið hennar.
Kv
Lára
Eruð þið vissar um að X hafi ekki verið að grínast? Er ekki fínt að fá millu fyrir gott djók? Líklega fáir sem afreka það á lífsleiðinni.
Það væri nú magnað. Mér hafði ekki dottið það í hug en það væri húmor ársins.
Skrifa ummæli
<< Home