Er annars byrjuð á "perrabókinni" sem foreldrar mínir gáfu Nonna í jólagjöf og líst vel á. Þetta er Samúel eftir Mikael Torfason og er ótrúlega skemmtileg, sérstaklega miðað við að þetta eru aðallega hugsanir gaurs sem er eins steiktur og hægt er að vera. Hef áður lesið bækur sem hafa verið svona eintal geðveikrar manneskju og hefur alltaf fundist þær hundleiðinlegar. Mæli með'enni.
Er búin að lesa LoveStar sem m&p gáfu mér og ég get líka mælt vel með. Nonni var samt ennþá hrifnari af þeirri bók en ég, hann var þvílíkt sáttur. Svo náði ég að lesa hálfa Fridu hjá Rósu áður en hún fór heim og hún lofaði mjög góðu. Svo bíður Vigdís Grímsdóttir á náttborðinu eftir Samúel... allt að gerast.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home