fimmtudagur, janúar 02, 2003

Ég þakka sömuleiðis fyrir frábærar gjafir en held ég hlífi ykkur við upptalningunni. Skólinn er nú að byrja aftur á fullu og það gæti orðið erfitt að koma sér í gírinn eftir letileguna á Florida. Í gær héldum við veislu heima hjá Gesti og Lenu og gæddum okkur á kalkún a la Brynja og Lena. Eftir matinn var svo horf á skaupið á netinu og þótti okkur takast vel til þetta árið. Sérstaklega var Freyr nokkur Eyjólfsson flottur í litlu en veigamiklu hlutverki.

Á mánudaginn fórum við á myndina Gangs of New York og langar mig til að var fólk við henni. Söguþráðurinn heldur ekki vatni og leikstjórnin að mín mati afar slöpp. Svo er Cameron Dias sérlega afkáraleg í og Leo allt of mikið baby (þó að Rósu þyki hann guðdómlega sætur).

Í kvöld fórum við á mun betri mynd, sem heitir Hringadrottinssaga. Mér fannst reyndar fyrsta myndir betri og gæti ég trúað að þeir sem ekki hafa lesið bókina séu verði svolítið ruglaðir í ríminu en er hlaupið hratt yfir sögu og margar persónur koma fram. Entarnir eru mjög flottir en Gollum olli mér hins vegar vonbrigðum, mér þótti hann alltof gervilegur. Hetja dagsins var án vafa John Rhys-Davis, sem leikur Gimla, en hann átti alla brandarana í myndinni og barðist náttúrulega eins og sönnum dverg sæmir.

Næst á svo að sjá Chicago, eða hina Leo myndina ef Rósa fær að ráða. Við erum sum sé dugleg í bíóferðunum þessa dagana.

Gleðilegt nýtt ár öllsömul og við skötuhjúin þökkum fyrir það gamla.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home