þriðjudagur, desember 31, 2002

Þá erum við komin aftur til Atlanta, sólbrún og sæt. Komum reyndar seint í fyrrakvöld en höfðum svo mikið að gera í gær að við blogguðum ekki neitt. Við vorum mjög sátt við ferðina, chilluðum mikið og náðum góðum lit. Rósa er einmitt úti í búð núna að fara með filmur í framköllun svo þið getið farið að hlakka til...

Í kvöld á að endurtaka vinningsréttinn frá Thanksgiving en við ætlum að vippa upp eins og einum kalkún. Við gerðum svo ís í gær a la Sigga (Rósumamma) sem verður í eftirmat. Svo er náttúrulega hvítvín og kampavín en engar rakettur þar sem það er beinlínis ólöglegt að vera með eitthvað einkaframtak í því. Verður sennilega lítið um skrall samt en aldrei að vita.

Við fórum á Gangs of New York í gær og hundleiddist eiginlega alla 3 tímana. Það eina sem kom í veg fyrir að við löbbuðum út (a.m.k. við Rósa) var að Leo var búinn að vera duglegur í ræktinni. Þessi mynd er að fá þvílíkt góða dóma sem er eiginlega alveg óskiljanlegt og ég er sannfærð um að gagnrýnendur séu á mála hjá kvikmyndafyrirtækinu. Myndin er reyndar mjög flott og Daniel Day Lewis sýnir stjörnuleik (eins og alltaf) en sagan er bara svo leiðinleg! Rósa var reyndar ekki alveg jafn hörð í sinni gagnrýni en ég held að það sé bara af því að hún er skotin í Leo.