fimmtudagur, desember 12, 2002

Saaeeelll hvað 24 eru góðir þættir. Þetta er bara með betra sjónvarpsefni sem ég hef séð í langan tíma. Ógeðslega góð hugmynd, ótrúlega vel skrifaðir og ófsalega (halda áfram með ó-þemað) vel leiknir. Erum búin að sjá fyrstu 8 þættina (ekki sko alla í einu, tókum okkur alveg tvær vikur í þetta) og ég get ekki beðið eftir framhaldinu... mar hefði kannski átt að byrja að fylgjast með þessu fyrr en kosturinn við að taka þættina úti á leigu er að þurfa ekki að bíða heila viku eftir hverjum þætti og í okkar tilfelli sleppum við við 20 mínútna auglýsingar. Já, þetta er ekki grín. Það sést á klukkunni í þættinum hvað auglýsingahléin eru löng svo ég veit um hvað ég er að tala (aldrei þessu vant).

Eins og þið sjáið er líf mitt alveg ofsalega innihaldsríkt þessa dagana. En vilduð þið frekar að ég segði ykkur frá mismunandi stærðfræðilegum aðferðum við að búa til slembibreytur úr hinum ýmsu dreifingum, eða þá hvernig KKT skilyrðin tryggja bestu lausn í bestunarföllum? Neihei... ég hélt ekki. Annars verður þetta nú allt búið klukkan tuttugu mínútur í sex í kvöld, eða eftir 9 tíma og 3 mínútur, og svo er það bara juletider.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home