I love my job! Strákarnir voru að hengja upp risa-Matrix-plakat með bara mynd af Keanu... verst að nú get ég ekkert unnið lengur vegna þess að augun leita alltaf á plakatið.
Annars var helgin mögnuð þrátt fyrir ýmsa vankanta á pökkunartækni hjá okkur Nonna. Eini gallinn var að þurfa að fara heim á mánudaginn og við erum strax byrjuð að skipuleggja næstu ferð. Svo opnaði Planet Reykjavík aftur um helgina svo ég er ekki laus af námskeiðinu mínu (klukkan sjö á morgnana alla virka daga vikunnar, veit ekki hvað ég var að hugsa þegar ég skráði mig!). Ég var ekkert rosalega fúl þegar stöðinni var lokað í síðustu viku... ekki það að ég sé mjög dugleg að mæta en er þeim mun duglegri að hjóla heim og hreyfa mig eitthvað annað.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home