Nýjar myndir
Hér hefur verið ansi hljóðlátt síðustu vikur. Kellan búin að eiga afmæli (fékk ekki það sem var á óskalistanum eins og ég var búin að spá). En það er allt gott að frétta af fjölskyldunni. Baldur braggast mjög vel. Orðinn mikill skæruliði enda skríður hann/gengur með eins og vindurinn og þykist ekki skilja hvað orðin Nei! og Óó þýða. Ég hef hann nefnilega grunaðan um að skilja vel hvað þetta þýðir því það kemur alltaf mikill prakkarsvipur á hann þegar hann heyrir þetta. En það stoppar hann ekki.
En nýjar myndir má sjá hér. Vegna leti síðustu mánaða eru þetta heil þrjú albúm en aðeins tvö þeirra af Baldri.

2 Comments:
Barn er fætt í Álfheimum...eða svona næstum því jafn fáséður atburður hefur átt sér stað. Það eru komnar nýjar myndir
Til hamingju með 1ns árs afmælið!
kv.
Linda, Sindri og börn.
Skrifa ummæli
<< Home