We are the champions!!! Það var eiginlega hálf sorglegt hvað við pökkuðum Gesti og Lenu vel saman í kana í gær. Nonni átti reyndar leik kvöldsins þegar hann sagði 12 og fékk 9 slagi, þar af fékk Gestur 3 slagi... guess you had to be there.
Annars erum við farin að ganga með gemsann á okkur allar stundir núna þar sem Lena er að sigla inn í 38. viku og aldrei að vita hvenær barnið ákveður að koma. Það er reyndar sett 9. október sem er alveg ómöguleg dagsetning þar sem við verðum í LA (jee!) frá 9. til 14. október. Mikil pressa á Lenu að drífa barnið í heiminn annað hvort fyrir eða eftir þann tíma... haha.
Ætlum í kvöld að ná í nýju gleraugun hans Nonna og svo að ná í tölvuna úr viðgerð. Ég yrði ekki hissa ef við myndum koma við á Blockbuster á leiðinni heim og ná í fyrstu þættina af Jack Bauer og félögum úr seríu 2.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home