fimmtudagur, október 09, 2003

Double Velcome

Mig langar líka til að bjóða hana Evu litlu velkomna í heiminn. Hún er alveg ótrúlega hraustlegt og fallegt barn, eins og systir sín. Stóra systir var nú dálítið öfundsjúk fyrsta daginn sem sú litla kom heim en virðist nú vera búin að taka hana í sátt. Í gær skipaði hún meira að segja mömmu sinni að taka Evu upp þegar hún var að gráta.

Á mánudaginn skilaði ég verkefni sem fólst í töluverðri forritun og tók mig hellings tíma, sennilega allt að 20 klst. Ég vann verkefni með rússneskri stelpu í bekknum mínum, Margaritu, sem oft er kölluð "Random Walk" af okkur bekkjarfélögunum vegna tíðra klósettferða hennar í kennslustundum. Verkefnið skiptist í tvo aðskilda hluta og gerðum við sitthvorn. Eins og fyr sagði, eyddi ég miklum tíma í að gera minn hluta en í ljós kom að hún Margarita vinkona mín hafði sloppið ansi vel frá sínu. Í fyrsta lagi reddaði hún sér forriti frá árinu á undan og þurfti bara að breyta nokkrum breytum. Í öðru lagi að á þótti henni ekki taka því að skrifa sjálf skýrslu um verkefnið, heldur skannaði hún megnið upp úr kennslubókinni og "peistaði" beint inn í skýrsluna.