miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Chicago

Aftur tókst okkur skötuhjúunum að leigja herfilega mynd í gærkvöldi. Í þetta skipti var það óskarsverðlaunamyndin Chicago. Svo sum ágætlega gerð en alveg ótrúlega leiðinleg. Rene Zellweger hefur álíka mikla útgeislun og svarthol.

Annars erum við að fara á Duran Duran á föstudaginn og hlökkum náttúrulega mikið til að sjá goðin. Þeir eru náttúrulega ofsa svalir og ég man ennþá eftir því þegar Simon Le Bon stökk frá á sviðið á Live Aid tónleikunum.