miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Furðufrétt

Mér finnst fréttaflutningur Moggans alltaf að verða skrýtnari og skrýtnari... Eins og hún hafi bara skipt um líf og heiti bara eitthvað allt annað eftir að hún giftist prinsinum.

Veröld/Fólk | AP | 19.11.2003 | 15:25
Jarlsfrúin af Wessex komin heim
Konan, sem var Sophie Rhys-Jones áður en hún giftist Játvarði prinsi árið 1999, yfirgaf sjúkrahúsið þar sem hún hefur dvalið eftir að hún ól frumburð sinn og prinsins. Fór hún á heimili þeirra hjóna nærri Windsor-kastala, sem er dvalarstaður Englandsdrottningar, móður Játvarðar, í helgarleyfum drottningar vestur af Lundúnaborg. Frumburðurinn, lítil prinsessa, er enn á sjúkrahúsi þar sem hún mun jafna sig enn um sinn eftir ótímabæra fæðinguna fjórum vikum fyrir tímann. Að sögn móðurinnar, sem nú er jarlsfrúin af Wessex, líður barninu vel og tekur það góðum framförum. Hún sagði jafnframt að ekki væri enn búið að ákveða hvaða nafn prinsessan litla muni bera.