Fréttapési
Þá er mín komin aftur heim í heiðardalin eftir tveggja daga ferð til NYC. Hápunktur ferðarinnar var að sjálfsögðu þegar við Kristrún gengum fram á sjálfan Mulder í ísferð með eiginkonunni, Téu Leoni. Ég verð að segja að maðurinn minnir mig bara dáldið á eiginmanninn tilvonandi. Hvað finnst ykkur*? Mikið hrós fyrir Mulder. Við vorum að sjálfsögðu hæstánægðar með þetta celebrity spotting, gerist eiginlega ekki mikið betra... haaaa.

Annars slappaði ég bara vel af. Við kíktum aðeins út á lífið á miðvikudaginn með crazy girl og með Ellu á fimmtudaginn (crazy girl too). Fyrir einskæra tilviljun enduðum við á sama veitingastað á fimmtudagskvöldinu og ég fór með Rósu og Nonna á um árið. Best að hafa farið tvisvar út að borða í Village og alltaf á sama stað. Svo var bara rölt um Manhattan og slappað af í Central Park. Fór reyndar á sama stað og við Rósa og Nonni um árið í Central Park en það var ekki tilviljun enda alveg magnaður staður. The Boathouse.

Nú um helgina erum við hjónakornin tilvonandi að slappa af. Við fengum okkur brunch á gyðingastað í Coolidge Corner í morgun og röltum svo þar um og skoðuðum í antikbúðir. Á morgun er stefnan hins vegar sett á að bregða undir sig betri fætinum. Annars vegar að kíkja á ströndina í Manchester by the Sea ef veðrið verður ofsa gott. Plan B er svo að kíkja niður til Newport í Connecticut að skoða gömlu sumarhús súperríka fólksins en þau eru víst til sýnist og ansi flott.
Svo bið ég ykkur vel að lifa.
*Það er greinilega hægt að plata David Duchovny í ýmislegt rugl þegar kemur að myndatökum eins og ég rakst á þegar ég var að finna mynd af honum. "Hey David ég veit, prófum að taka mynd af þér berum með tebolla yfir sprellanum". Ok... "Eða þar sem þú ert í apastellingu og lítur út fyrir að vera með bleyju". Ok...

3 Comments:
Hahaha, ég vil fá myndir af Nonna með tebolla og bleyju! En ég tek undir að þeir eru ekki ólíkir Nonni og David. Mér finnst Nonni reyndar líkur nokkrum leikurum, hann er svoldið svipaður Thomas Jane, sem lék The Punisher.
Hlakka til að kíkja til Boston í haust... Og NY... Mig langar líka að sitja með vinkonum að drekka hvítvín... En það virðast ekki ætla að verða örlög mín næstu 2 vikurnar eða svo.
Knús frá LA,
Anna.
Já, það verður tekið vel á móti þér í Boston og örugglega ekki síður í NY. Er búin að ákveða nokkra staði sem ég ætla að taka þig með á. Er löngu byrjuð að skipuleggja...
Já, það verður tekið vel á móti þér í Boston og örugglega ekki síður í NY. Er búin að ákveða nokkra staði sem ég ætla að taka þig með á. Er löngu byrjuð að skipuleggja...
Skrifa ummæli
<< Home