Rauðir sokkar = Blautir sokkar
Þriðja leik Yankees og Red Sox var frestað í kvöld vegna rigningar. Djöflarnir í Yankees unnu fyrstu tvo leikina þannig að Red Sox verða að vinna næsta leik. Þó að ég viðurkenni fúslega að ég sé ekki skærasta peran í seríunni þegar kemur að íþróttum* (ég bæti það meir en upp með öðrum kostum) en ég held að sá komist áfram sem vinnur 3 leiki.
Jæja, best að tala um eitthvað sem ég veit eitthvað um... sumir vilja jafnvel ganga svo langt að segja að ég sé sérfræðingur. Nú er Nicky litla Hilton komin með annulment prósess í gang. Eins og allir vita púllaði hún Britney þegar hún giftist barnaníðingnum** Todd Meister eftir djamm í Las Vegas. "Brúðkaupið" fór fram þann 15. ágúst síðastliðin en Nicky á að hafa sagt "Am I?" og flissað þegar hún var spurð hvort hún væri ekki ennþá gift þegar hún var úti á djamminu hringlaus í lok september. Smá aukabónus... Uppljóstrarar mínir segja mér að París hafi skipulagt þetta glæsibrúðkaup frá A til Ö.
Æ já, svo verð ég aðeins að tjá mig um the afore mentioned Britney. Ég treysti því að lesendur mínir séu up to par með hvernig brúðkaupið var. Ok, fyrir ykkur sem eruð ekki alveg með á nótunum þá er hérna smá upprifjun: BBQ Chicken Wings að éta, mathcing jogginggallar fyrir brúðarmeyjar og vini brúðgumans (á stelpnanna stóð "The Maids" á strákanna stóð "The Pimps"... hrollur) og svo djamm á klúbbum um kvöldið. Þetta var svo allt ljósmyndað í bak og fyrir og selt til People og annarra slúðurblaða en mér skilst að það sé ein helsta (og eiginlega bara eina) tekjulind brúðgumans. Bíllinn hans var m.a.s. gerður upptækur í maí... gæði! Anyhow, þetta var bara upprifjun. Það sem ég ætlaði að hneykslast á var brúkaupsferðin (og munið nú að Brit litla er $123 milljóna virði)... þau fóru til fæðingarbæjar hennar, Kentwood í Louisiana! Við Nonni höfum einmitt farið þangað í pílagrímsferð og getum vottað það að þetta er mesta hillbillyrassgat sem til er! Þar eyddu þau tímanum í WalMart, Mall of Louisiana (keyrðu í klukkutíma til að komast þangað) og á hamborgarastöðum með fjölskyldu hennar... Ok, ef einhver var ekki komin með það á hreint að Brit og Kev séu White Trash dauðans þá hafiði það!
Love'n'Respect
Brynja
*Ég get samt státað af því að hafa getað svarað Trivial spurningunni "Hver er svarta perlan?"... eða var það demanturinn? Hmmm... svarið er allavega Pele.
**Ok, kannski sterkt til orða tekið en hann hefur deitað Nicky í nokkur ár og þar á undan deitaði hann vinkonu hennar og jafnöldru í einhvern tíma. Hann er rúmlega þrítugur, hún er tæplega tvítug.

2 Comments:
ég segi bara eins og jessica simpson, "oh, my gaa."
ég keypti blaðið með myndunum...ég hefði ábyggilega getað reddað þeim mun ódýrari díl á fötum og mat með því að fara bara í walmart og kfc. þá hefðu þau allavega fengið "the real thing". hehehe.
Tad tarf ad vinna fjora til ad vinna ... af tvi ad tetta eru urslit deildarinnar (tad eru tvaer deildir) og svo keppa sigurlidin ur hvorri deild um heimsbikarinn!!!
Skrifa ummæli
<< Home