Dópsaga
Jæja, mikið búið að gerast síðustu vikur. Mamma, pabbi og Siggi bró byrjuðu á því að koma í heimsókn í fjóra frábæra daga. Get ekki beðið eftir að flytja til Íslands og geta hitt þau oft í viku. Takk fyrir komuna :)

Um leið og þau voru farin skellti kella sér í chillið í LA. Frábærlega plönuð Cali-dagskrá hjá Önnu Þorbie með Pilatesi, jóga, hvítvíni og celeb spottingi. Gerist ekki betra! Get ekki beðið eftir NYC 16. des en AÞ er búin að vera að plana á fullu... Is gonna be goooood.

Þótt Nonni hafi hlegið mikið þegar ég dubbaði LA ferðina sem námsferð þá náði ég m.a.s. að læra aðeins fyrir prófin tvö sem ég tók svo á mánudag og þriðjudag í þessari viku. Eins og flestir vita getur verið strembið og stressandi að taka tvö próf í röð en ég taldi mig nú aldeilis kunna ráð við því.
Ég var ekkert stressuð alla helgina fyrir prófið en þegar ég lagðist á koddann á sunnudagskvöldið fékk ég stresskast og svaf almennt rosalega illa þangað til ég vaknaði klukkan fimm um morguninn (prófið var kl. 9). Mér gekk reyndar ágætlega í prófinu en gekk svo illa að læra um daginn vegna þreytu og hausverks. Mín ætlaði nú ekki að láta þetta gerast aftur eða vera illa sofin (ofaná að vera illa lærð) fyrir þriðjudagsprófið þannig að ég ákvað að taka eina lauflétta svefnpillu fyrir svefninn. Mín tók töfluna rétt fyrir ellefu og sveif svo inn í draumalandið um ellefu. Ég ætla nú ekki að kvarta yfir því að hafa sofið illa en þegar kom að því að vakna um morguninn var ég ekki alveg jafn hress. Ég skrönglaðist loksins fram úr klukkan átta um morguninn (eftir 9 tíma svefn!) og rétt náði í prófið á tíma. Ég get ekki sagt að ég hafi verið syfjuð í sjálfu prófinu en ég fann fyrir greinilegum lyfjaáhrifum í heilanum. Ég var svo alveg svakalega mellow í allan gærdag.
Lesson learned: Ekki dópa daginn fyrir próf! Verður spennandi að sjá hvað kemur út úr prófinu... híhí.
Jæja, ég ætla svo bara að láta myndirnar tala sínu máli... hér til hliðar. Sama leyniorð og venjulega.

3 Comments:
Geggjaðar myndir!
Knús,
Annie Olsen
Já en þá nær maður ekki sömu vímuáhrifunum ;) Híhí... ég hefði nefnilega átt að prófa hálfa til að byrja með en alltaf hægt að vera vitur eftirá.
hæ sæta systir,
hefurðu prófað Baldrian, náttúrulega kvíða og svefnlyfið. Fæst í Matas í Danmörku. Pínu erfitt að vakna, en svo er allt í góðu eftir einn eða tvo kaffibolla. Gert úr Valeríu-rót eða einhverjum fjanda.
By the way, ég var að kommenta á glansmyndirnar (sjá lok okt.). Þu ættir að kíkja á það frú systir og láta samviskubitið naga þig.
knús í krús yfir hafið,
anna sys.
Skrifa ummæli
<< Home