föstudagur, desember 10, 2004

Í hefndarhug

Jólagleðin svífur ekki yfir vötnum þessa dagana. Ég er nefnilega í hefndarhug. Það rignir yfir mig pósti frá hinum ýmsu fyrirtækjum þessa dagana sem tilkynna mér að ég sé "preapproved" fyrir hinar ýmsu gerðir af kreditkortum. Eftir að hafa þurft að berjast við bankayfirvöld hérna til þess eins að fá kreditkort með heimild sem dugir ekki einu sinni fyrir einni lítilli Coach tösku þá finnst þeim loksins kominn tími til að gefa mér kort þegar ég er að flytja heim!

Til að hefna mín á þeim þá ákvað ég að fara að ráðum Andy Rooney. Flestum tilboðunum fylgir nefnilega svarumslag þar sem viðtakandi borgar sendingargjaldið. Til að ná mér rækilega niður á þeim þá sendi ég þeim öllum umslagið til baka tómt. Þau þurfa þá að borga sendingarkostnaðinn, 37 sent, án þess að fá viðskipti mín. Ég er slæg.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

That will show them!!!

6 dagar í NY... Ég get ekki einu sinni lært, ég er svo spennt...

Love,
Anna Þorbjörg

4:42 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gleymdi einu:

You are always preapproved with us...

Anna og Palli

4:43 e.h.  
Blogger Brynja said...

Oh en sætt... takk fyrir það.

Sama hér, NY er mjööög ofarlega í huganum þessa dagana.

6:01 e.h.  
Blogger Stína said...

þetta pre-approved er ekkert endilega rétt. það þarf samt sem áður að fá credit history og eitthvað svoleiðis og heimildin verður ekkert há. þetta er bara lygagimmic...reyndar hef ég ekkert prófað þetta. hehe..við fengum kreditkort í gegnum sambönd og erum alveg ánægð en það hellast yfir okkur tilboð og hringt á kvöldin...óþolandi!

7:11 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home