Brownie
Þá er helgin bara að bresta á með öllu sem því tilheyrir. Fyrir okkur gömlu hjónin þýðir það Key West, snorkeling á bátsferð á laugardaginn og sennilega rómantískur kvöldverður um kvöldið. Ætlunin er að gista á sama gistiheimili og við eyddum þarsíðustu jólum með Rósu, Rauða hananum.
Ég hef nýtt dagana hérna mjög vel. Ég ákvað að fylgja í fótspor Reese Witherspoon, Nicky Hilton og fleiri góðra gellna og litaði á mér hárið. Niðurstöðuna má sjá hér til hliðar. Ef flassið hefði ekki lýst mig svona upp mætti líka sjá hvað ég er orðin rosalega brún. Ég er samt ekki búin að vera jafn dugleg og rúskí gellurnar sem hafa legið niðri við hótellaug frá hálf níu til fimm alla daga. Þær eru um fertugt, dáldið þybbnar, með aflitað og appelsínugult hár, í pínulitlum og eiturgrænum bikíníum, með rúsínuhúð og liggja á vindsængum í lauginni ALLA daga. Æ já, nema þegar þær skreppa upp á bakkann til að fá sér bjór og sígó... svona langar mig að verða.
Jæja, nú ætla ég að fara að setja upp Linux á tölvunni minni (Dual Boot með Windows XP... vúhú) og niðurstaðan úr því gæti orðið sú að ég rústi tölvunni þannig að ef það gerist ekkert á þessu bloggi næstu vikurnar vitið þið af hverju...
Æ, hvað þetta var súr færsla.
Luv,
Brynní

3 Comments:
Sjiii... bjóst ekki við að myndin yrði svona stór. Ein ánægð með sjálfa sig... haha. Þið verðið bara að njóta þess, ekki víst að ég geri þetta aftur í bráð.
Þetta er yndisleg mynd. Þú mátt vera ánægð með hára- og líkams-litinn.
Ég er í ruglinu þessa dagana. Gestir og gestir (sem er frábært), full mikið af hvítvíni, dagdrykkja og læti.
En það er bara kúl.
Hlakka til að sjá þig eftir mánuð.
Knús,
Annie
Hljómar eins og skemmtilegt líf... er í svipuðum pakka í Flórída og síðasta vika í Boston var líka ljúf með Bibbu Töff.
Hlakka til að sjá þig í Bos ;)
Skrifa ummæli
<< Home