It's good to be Red Sox nation
Red Sox vann í gær og í kvöld verður sjöundi og síðasti leikurinn... eiginlega ekki hægt annað en að fara á pöbbinn, fá sér BBQ Chicken Wings, bjór og horfa á leikinn.
Curt Schilling er farinn að nálgast top 5 listann minn ískyggilega mikið. That's how far I'm gone.

4 Comments:
Hann er með bumbu!
Ég trúi ekki hversu lágt þú hefur lagst :)
L&R
Thorbie (go Dodgers...)
Mikið svakalega eru strákarnir í Boston að standa sig. Ég held að við verðum bara að skella okkur til Boston til að upplifa þetta beint í æð.
Let´s go Red Sox klapp, klapp o.s.frv....
BB
Reyndar er ég sammála henni Thorbie. Schilling er með bumbu og er í þokkabót kiðfættur. Hvernig getur svona maður verið atvinnumaður í íþróttum, ég bara spyr? En við kvörtum ekki fyrst hann er kastarinn fyrir Red Sox.
BB
Við Magga vorum einmitt að ræða það í gær yfir leiknum að Red Sox væru sko aldeilis að sýna það og sanna að maður þarf ekki að vera ungur, sætur og í sæmilegu formi (Yankees) til að vera góður í íþróttum. Nei, borgar sig eiginlega frekar að vera miðaldra, með bumbu, feitan rass og tyggja munntóbak í gríð og erg.
Sko, Curt er ekki kominn inn á listann minn en hann er kominn ískyggilega nálægt (ca. sæti 100) m.v. útlit og andlegt gervi (hann er born again christian og þakkar eingönu guði fyrir hvað hann er góður pitcher).
Skrifa ummæli
<< Home