Reverse the Curse?
Nú er allt að verða vitlaust. Eftir 3 rasskellingar hjá Yankees tókst mínum mönnum að vinna tvo leiki í röð. Aldrei í sögu "World Series" hefur liði tekist að koma til baka eftir að hafa tapað þremur leikjum*. Og hverjir eru betri til að brjóta blað í sögu hafnarboltasögunnar en hinir sögufrægu Red Sox... nú bíðum við bara spennt eftir leiknum í kvöld.
Hahaha... hver hefði haldið að önnur hver færsla hjá mér væri um íþróttaviðburði! Ég kemst þó ekki með tærnar þar sem McMaggi hefur hælana.
Spurning dagsins er: Á Brynja að fara til New York í vikunni? (plís, segiði já).
*Það var rangfærsla hjá mér um daginn að það þyrfti að vinna 3 leiki... það er best af sjö leikjum sem vinnur. Semsagt, þarf 4 leiki til að vinna.

5 Comments:
Jamm maður er svona týpan sem verður uppiskroppa með umræðuefni í veislum og opnar næstu setningu á "sástu leikinn í gær?".
Ég hef mjög gaman af því að lesa hafnarboltafærslurnar. Hef aldrei sett mig inn í hann, hvað þá ensku versionina, krikkett. Mönnum tókst misvel að flækja reglurnar í "kíló". Geri hér með Red Sox að mínu liði í World Series.
N.Y. fær mitt atkvæði
Kv.
McMaggi
NY er klárlega málið. You go girl!
vp
NY eða jafnvel LA er klárlega málið.
Skemmtileg nýjung þessi íþróttaumræða. Vil samt fá meira slúður svona til að vega upp á móti ;)
Love,
Annie
Ekkert slúður fyrr en þú viðurkennir að The Sox rúla!
Hei já, ég þakka líka NY stuðninginn en það verður víst ekkert af ferðinni í vikunni... too much work to do. Bíður bara betri tíma og ég kem bara sterk inn seinna.
Skrifa ummæli
<< Home