Garpurinn
Garpur fjölskyldunnar gekk á Esjuna í gær. Við Rósa erum m.a.s. svo miklir garpar að við sættum okkur ekki einu sinni við þessar venjulegu leiðir. Ónei, við fórum sérstaka garpaleið sem lá um mosa og mýrar Esjunnar. Upp á topp komumst við þó og ég tók mynd af okkur til þess eins að fatta þegar ég kom heim að myndavélin væri biluð! Bömmer... en ég mun fara þarna upp aftur. Eins gott fyrir mig kannski þar sem hnúkurinn er eftir allt of fáa daga.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home