Komin aftur á fulla ferð
Jesús góður. Helgin bara búin að fara í brúðkaup Karls Bretaprins og Camillu Parker Bowles... NOT. Er eitthvað meira óspennandi en að Karl-lufsan hafi loksins gifst ástkonu sinni til margra ára. Eins gott að hún er komin úr barneign því að þið getið rétt ímyndað ykkur greppitrýnin sem þau hefðu getað átt saman. Já, Wills og Harry geta þakkað fyrir það að pabbi þeirra hafi byrjað á Díönu. Það má reyndar deila um faðerni Harrys. Hann er skuggalega líkur manni sem var "mjög góður vinur" Díönu nokkru áður en hann fæddist... Mesta hneykslið við þetta brúðkaup var samt ekki hin opinbera viðurkenning á framhjáhaldi ríkisarfans (já, ég er Díönu kona) heldur fatnaðurinn sem brúðurinn og sumir kvenkyns gestir voru í. Ojbara! Kartöflupokar eru klæðilegri.
Ég náði að endurnýja gömul kynni við gömlu og góðu vini mína In Touch, US Weekly, People og Star á ferð minni til Bandaríkjanna. Náði m.a.s. tveimur umgöngum. Kom á laugardegi og nýju blöðin koma öll á miðvikudögum þannig að ég passaði mig að vera búin að kaupa einn umgang fyrir það... ég er svo útpæld að það hálfa væri nóg. En hér kemur smá updeit fyrir ykkur sem nennið ekki að leggja á ykkur alla þessa rannsóknarvinnu.
Brad Pitt er allt í einu orðin rosalega virkur í góðgerðarmálum. Farinn að ferðast til Afríku að heimsækja munaðarlaus börn og svoleiðis. Hmmm... sagði einhver Angelina Jolie?!!
Matthew McConaughey er farinn að minna mig ótrúlega mikið á Woody Harrelson. Kannski það sé atvikið með bongótrommurnar í Kanada* eða það að hann er að ferðast um Bandaríkin á húsbíl og grillar reglulega á bílastæðum hálfnakinn... I wonder? Það er allavega eitthvað crazy/flipp element við hann sem ég sé líka í honum Woody.
Að lokum þá verð ég að segja að mér hefur alltaf fundist hún Mariah Carey dáldið coo-coo en nú toppaði hún alveg sjálfa sig. Nýja platan hennar heitir "The emancipation of Mimi". Mér finnst eitthvað mjög steikt við þetta nafn. Kannski er ég bara svona óflippuð, hver veit?
Næst: Á Jessica að henda Nick á dyr? Hvernig jafnar Jen sig á Brad? Hvað gerðist raunverulega þegar örvæntingarfullu húsmæðurnar sátu fyrir hjá Vanity Fair? Og síðast en ekki síst... hvað gerðist milli Denise og Charlie (ég er jafn forvitin og þið).
*A.k.a. The naked bongo drum incident

2 Comments:
Hvað finnst þér um Niklas Sonderblom sem náði að vera hálfnakinn á síðum allra slúðurblaða síðustu viku? Hot or not? (Við erum að tala um unnusta Nicolette Sheridan).
Ég fór á Sahara í gær (já í einhverju svakalegu flippi) og ég held að enginn líkami í Hollywood toppi Matthew vin okkar. Enginn!
Respect from da Westcoast.
Já, ég var að hugsa um að setja inn í færsluna að Matthew sé nú alveg fyrirgefið að vera steik þó ekki væri nema fyrir 6-packinn.
Veit ekki hvað mér finnst um Niklas. Horfi alltaf á hann með gagnrýnisgleraugunum þar sem ég veit hver er hans X. Mér finnst Nicolette líka frekar ósexí manneskja. Ein af þeim sem reynir of mikið. En Niklas, jú ætli hann sé ekki vel fyrir ofan meðallag (samt enginn M.McC) þegar kemur að body.
Skrifa ummæli
<< Home