Frumskógarævintýri
Þá er ferðatríóið góða komið til Nepal sjálfum sér til mikillar ánægju. Þeir virðast vera aðeins lengra komnir í ferðamennskunni en Indverjarnir og hægt að versla bjór í búðunum hérna. Einnig eru þorpin talsvert snyrtilegri og lyktin skárri. Þeir skreyta framhliðarnar á húsunum sínum mjög fallega þó að bakvið sé kannski bara hreysi.
Við erum núna í Royal Chitwan National Park og fórum í gær í athyglisvert frumskógarrölt. Nepölum finnst ekkert tiltökumál að fara með óvana túrista inn í frumskóginn án þess að hafa svo mikið sem vasahníf meðferðis. Leiðbeiningarnar sem við fengum voru eftirfarandi.
1. Ef nashyrningur ræðst á ykkur er best að hlaupa í sikk-sakk að næsta tré sem þið getið klifrað upp í og klifra upp í a.m.k. tveggja metra hæð.
2. Ef "sheath bear" (kann ekki að þýða þetta) ræðst á okkur þá er best að standa öll í hnapp og öskra eins og við getum lífið leyst til að reyna að hræða hann í burtu.
3. Ef við sjáum tígrísdýr er best að stara í augun á því og ekki sýna nein hræðslumerki. Ef það dugir ekki þá er eiginlega ekkert annað hægt að gera...
4. Ójá, gleymdum við að segja ykkur að það gengur laust tígrisdýr sem drap þrjár konur í þorpinu í síðustu viku? Tígrisdýr sem hafa einu sinni smakkað mannakjöt vilja helst ekkert annað eftir það.
Við vorum náttúrulega dáldið skelkuð þar sem við gengum inn í frumskóginn eftir þessar leiðbeiningar. Eins og við séum eitthvað að fara í störukeppni við tígrisdýr... ég myndi ekki setja mína peninga á sjálfa mig í þeirri keppni!
En ferðin gekk vel og það hættulegasta sem við rákumst á var eitraður snákur sem leiðsögumaðurinn okkar var fljótur að sjá og reka burt af veginum. Við heyrðum hins vegar tígrisöskur og sáum grasið hreyfast undan nashyrningum þar sem við sátum uppi í útsýnisturni á leiðinni. Eftir fimm tíma í frumskóginum komum við að útibúi hótelsins sem við gistum á. Það voru í raun bara nokkrir leirkofar og bar. Við þurftum nú ekki meira en það og eyddum restinni af deginum í skála fyrir hugrekki okkar. Komum aftur í "siðmenninguna" á hádegi í dag.
Í dag fór hluti hópsins í fílasafarí en kaldrifjaðar píur eins og ég sem hafa takmarkaðan áhuga á dýrum ákváðum í staðinn að setjast með bók á strandabarinn niðri við ána. Á morgun verður svo haldið til Katmandu þar sem formlegu ferðinni lýkur. Við verðum þar þó í tvær nætur áður en við höldum til Delhi.
Over and out!

3 Comments:
Hæ hæ sætu hjón!
Gaman að fylgjast með ykkur. Njótiði ferðarinnar og sjáumst svo fljótlega.
kv.
Birna Ósk og Kiddi
Þið þurfið greinilega að æfa störuna meira, við verðum hrædd um ykkur að heyra hvað þið eruð illa undirbúin. Við mamma erum viss um að Ástþór gæti tekið ykkur í þjálfun.
Ykkar p og m í Goðheimum
Sheath bear, hvað er það?
Sheath þýðir 'slíður' eða 'skeiðar', sbr. skeiðahnífur: hnífur í slíðri.
Í orðabókinni er til sheath bill: 'slíðurnefur (vaðfugl með hornslíður á nefi). Þessi bangsi þarna í skógum Nepal gæti heitið slíðurbjörn eða skeiðabjörn.
Orðabókardeildin í Goðheimum
Skrifa ummæli
<< Home