mánudagur, nóvember 27, 2006

Jólakortin í ár


Ég er búin að vera að velta fyrir mér þema á jólakortin frá okkur Nonna í ár og nú er það fundið! Þið megið eiga von á smart og smekklegum kortum frá okkur hjónunum í ár.
Neðri myndirnar tvær eru sérlega flottar. Sé okkur Nonna alveg fyrir mér.

miðvikudagur, nóvember 08, 2006

Familinskí

Familinskí Baldinski skellti sér til Barcelona á dögunum. Við "börnin" slógum tvær flugur í einu höggi og buðum gamla settinu í 30 ára brúðkaupsafmælisgjöf og óvissuferð sem aldrei var farið í og þau fengu frá okkur í 25 ára brúðkaupsafmælisgjöf. Ferðin var gríðarlega vel heppnuð og kom Sangríumaðurinn sérlega sterkur inn.

Í kvöld sá ég eitt fyndnasta atriði í bíó sem ég hef séð lengi lengi. Nonni segist aldrei hafa séð mig hlæja svona mikið og tárin hreinlega láku niður kinnarnar á mér. Umrædd mynd: Borat. Þeir sem hafa séð hana vita um hvað ég er að tala. Ég ætla ekki að eyðileggja ánægjuna fyrir ykkur hinum.