sunnudagur, janúar 29, 2006

Fleiri myndir

Ferðafélagi okkar frá Indlandi var að setja upp myndasíðu.

fimmtudagur, janúar 05, 2006

Áramótaloforðin

Ég er strax farin að íhuga alvarlega að hætta við áramótaloforðin. Þau voru að éta minna og hollara, drekka minna hvítvín (reyndar er kampavín my new beverage of choice), vera duglegri í ræktinni og lifa almennt heilbrigðara lífi. Janúar og febrúar eru svo boring mánuðir að það er eiginlega ekki hægt að gefa frá sér góðu hlutina í lífinu akkúrat á þessum tímapunkti. Best að fresta þeim fram á sumarið þegar dagarnir eru lengri.

þriðjudagur, janúar 03, 2006

Gleðilegt ár!

Stórfjölskyldan í Mávahlíð 15 óskar aðdáendum sínum gleðilegs árs og þakkar öll gömlu árin.


Nýjar myndir eru komnar inn.