miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Dópsaga

Jæja, mikið búið að gerast síðustu vikur. Mamma, pabbi og Siggi bró byrjuðu á því að koma í heimsókn í fjóra frábæra daga. Get ekki beðið eftir að flytja til Íslands og geta hitt þau oft í viku. Takk fyrir komuna :)


Um leið og þau voru farin skellti kella sér í chillið í LA. Frábærlega plönuð Cali-dagskrá hjá Önnu Þorbie með Pilatesi, jóga, hvítvíni og celeb spottingi. Gerist ekki betra! Get ekki beðið eftir NYC 16. des en AÞ er búin að vera að plana á fullu... Is gonna be goooood.


Þótt Nonni hafi hlegið mikið þegar ég dubbaði LA ferðina sem námsferð þá náði ég m.a.s. að læra aðeins fyrir prófin tvö sem ég tók svo á mánudag og þriðjudag í þessari viku. Eins og flestir vita getur verið strembið og stressandi að taka tvö próf í röð en ég taldi mig nú aldeilis kunna ráð við því.

Ég var ekkert stressuð alla helgina fyrir prófið en þegar ég lagðist á koddann á sunnudagskvöldið fékk ég stresskast og svaf almennt rosalega illa þangað til ég vaknaði klukkan fimm um morguninn (prófið var kl. 9). Mér gekk reyndar ágætlega í prófinu en gekk svo illa að læra um daginn vegna þreytu og hausverks. Mín ætlaði nú ekki að láta þetta gerast aftur eða vera illa sofin (ofaná að vera illa lærð) fyrir þriðjudagsprófið þannig að ég ákvað að taka eina lauflétta svefnpillu fyrir svefninn. Mín tók töfluna rétt fyrir ellefu og sveif svo inn í draumalandið um ellefu. Ég ætla nú ekki að kvarta yfir því að hafa sofið illa en þegar kom að því að vakna um morguninn var ég ekki alveg jafn hress. Ég skrönglaðist loksins fram úr klukkan átta um morguninn (eftir 9 tíma svefn!) og rétt náði í prófið á tíma. Ég get ekki sagt að ég hafi verið syfjuð í sjálfu prófinu en ég fann fyrir greinilegum lyfjaáhrifum í heilanum. Ég var svo alveg svakalega mellow í allan gærdag.

Lesson learned: Ekki dópa daginn fyrir próf! Verður spennandi að sjá hvað kemur út úr prófinu... híhí.

Jæja, ég ætla svo bara að láta myndirnar tala sínu máli... hér til hliðar. Sama leyniorð og venjulega.

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Verðlaunagetraun

Hvað eiga eftirfarandi aðilar sameiginlegt?

Liza Minelli
Dean Cain (aka Superman)
Debbie Rowe (aka barnsmóðir Michael Jackson)
Randy Jackson (aka dómari úr American Idol)
Dylan McDermott (aka lögfræðingur úr The Practice)
Ashley Simpson (aka Lipsyncher)

Vegleg verðlaun í boði fyrir rétt svar.

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

Námsferðin

Ég er rosalega dugleg að læra í LA.

fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Ég er brjáluð

Ameríkanar eru heimskari en ég hélt.

Tékkið annars á þessu.

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

Í fréttum er þetta helst

NBC National News með Tom Brokaw fjallar um 3 fréttir í kvöld: Forsetakosningarnar, framvinduna í Írak og gos í Vatnajökli.

Þess má geta að við hjónin verðum með báðum frambjóðendunum í kvöld. Eins og áður sagði mun Kerry verða á Copley Square í Boston í kvöld og Bushy mun verða í Hvíta húsinu í Washington DC, nokkur hundruð metrum frá hótelinu hans Nonna.

Ég er komin með sting í magann...

mánudagur, nóvember 01, 2004

Spennandi tímar

Mikið um að vera í Boston og LA (meira um það síðar) þessa dagana. Kosningar á morgun og spennan mikil. Ég hef sjaldan verið jafn spennt fyrir nokkrar kosningar nema ef vera skyldi kosningar til Stúdentaráðs hér um árið. Ég er reyndar ekki mjög bjartsýn en það er samt mjótt á mununum og allt getur gerst.

Þó að Bush mælist með aðeins meira fylgi í flestum könnunum þá er munurinn innan skekkjumarka og vert að geta þess að sitjandi forseti hefur held ég alltaf mælst með yfir 50% fylgi í könnunum ef hann hefur verið endurkjörinn. Mesta spennan er í hinum svokölluðu "Swing States" en þar mælist mest 1,6% munur á frambjóðendum. Það gæti líka farið svo að þeir fái jafn marga kjörmenn, eða 269, og þá mun þingið sjá um að kjósa forsetann. Það er jafnvel talið að ef svo færi gætu Bandaríkjamenn setið uppi með Bush-Edwards þar sem það er talið nær öruggt að þau muni kjósa Bush sem forseta en nýkjörið þing með demókrötum í meirihluta gæti troðið Edwards með honum. Það yrði athyglisverð blanda svo ekki sé meira sagt. Það má einnig til gamans geta þess að forseti hefur aldrei náð kjöri án þess að vinna Ohio, sem er einmitt eitt af Swing fylkjunum.

Kerry mun fagna á Copley Square annað kvöld með vinum og velunnurum, þ.á.m. mér. Hátíðin byrjar klukkan átta og von er á um 30 þúsund manns, mun fleiri ef hann vinnur. Það yrði að sjálfsögðu magnað að vera á staðnum og fagna með demókrötunum ef hann vinnur. Ekki frá því að ég laumi einni freyðivíni í bréfpoka með mér ef þetta fer vel.

Að öðrum fréttum. Mamma, pabbi og Siggi eru að koma á miðvikudaginn og þá verður nú aldeilis kátt á hjalla. Pabbi fylgir slagorðinu "Sova kan man göra hemma" í utanlandsferðum sínum þannig að ég býst við að við Nonni verðum uppgefin eftir alla dagskrána sem búið er að plana. En það verður nú bara gaman.

Eftir að þau fara þá er næst á dagskrá hjá kellingunni að fara í námsferð til LA þar sem hún ætlar að láta gott námskarma Önnu Þorbie-ar smitast yfir á sig. Lokaprófin í HR byrja nefnilega þann 15. nóvember. Ætli við tökum okkur ekki eina eða tvær lærupásur og fáum okkur hvítvínsglas eða chillum á sundlaugarbakka. Sweet.