fimmtudagur, júlí 17, 2003

Hvað finnst fólki um svona hljóðblogg? Mér finnst þetta frábær hugmynd. Verst að ég á ekki GSM síma með myndavél því þá gæti ég póstað myndir líka eins og Helga gerði í gær.

miðvikudagur, júlí 16, 2003

Einn tveir, einn tveir gert í bloggsíma Hex

Velkomin gert í bloggsíma Hex.

Haldiði ekki að það séu komnar myndir og hljóð úr Liquid Lunch á netið. Ég við taka það er ástæða fyrir því að ég er svona Mean Machine þarna. Ég var að reyna að hrista tómatsósu á diskinn minn úr glerflösku og eins og allir vita þarf mikla einbeitingu til þess.

Sjaldséðir hvítir hrafnar. Nú er ég farin að verða fyrir aðkasti úti í bæ vegna bloggleysis og sé mér því ekki annað fært en að blogga smá.

Það er helst að frétta að við erum búin að kaupa okkur flugmiða til LALA - lands að heimsækja þau Önnu Beib og Páogol the Thinker (Páogol the Punisher) í Október. Nonni er búinn að uppfæra Topp 5 listann sinn til samræmis til að auka líkurnar á að hann hitti viðkomandi svo nú inniheldur hann bara fólk sem býr í LA. Fyrir þá sem ekki vita inniheldur Topp 5 listinn nöfn þeirra einstaklinga sem maður má sofa hjá, bjóðist manni tækifæri, án þess að makinn verði fúll. Þetta er listinn hans Nonna:
Halle Berry
Angelia Jolie
Anna Nicole Smith
Beyonce Knowles
George Clooney

Verði honum að góðu!

Annars er veðrið yndislegt í dag. Liquid Lunch klúbburinn sammþykkti samróma að það væri fimmtudagur í dag svo við fórum í (Liquid) Lunch á Vegamótum í h-deginu. Það er svo gaman hvað bærinn fyllist af fólki um leið og sólin gægist fram. Tala nú ekki um þegar veðrið er eins gott og það er í dag. Hitti fullt, fullt af fólki á leiðinni.

Annars er von á nýjung á blogginu mínu á næstunni. Fylgist með...

fimmtudagur, júlí 03, 2003

Ég er að hugsa um að uppfæra lookið á síðunni minni þegar ég kem aftur út. Er orðinn dáldið leið á þessu. Svo lærði ég svo mikla Java forritun í vor að ég ætti nú að geta gert eitthvað magnað. Hmm, vona að þið verðið búin að gleyma þessu kommenti þegar nýja lookið kemur.

Mikið er ég nú orðin löt að blogga. Það er reyndar aðallega vegna þess að ég sit aðallega fyrir framan tölvu í vinnunni og þá er ég að vinna en ekki blogga. Þegar ég er ekki að vinna þá langar mig að gera eitthvað allt annað en að sitja fyrir framan tölvuna. Þó gefast stundum tækifæri, eins og í kvöld, til að setjast niður og skrifa smá.

Nú eru helgarnar smám saman að fyllast og bara einn og hálfur mánuður þangað til við förum aftur út! Mér finnst ég vera nýkomin heim.
Um næstu helgi verður árshátíð Barbiegirls og Kenboys fá að vera með okkur um kvöldið. Við Anna, Anna og Eva erum í skipulagsnefndinni og það er búið að plana rokk dag þar sem þemað er Villtar Meyjar. Meira get ég ekki sagt þar sem dagurinn á að koma hinum Barbiegirlunum á óvart.
Helgina þar á eftir var planið að fara á Ísafjörð, að heimsækja Hjördísi, en það er nú eitthvað að detta uppfyrir. Ég get þó huggað mig við að til boða stendur að fara í Þórsmörk í staðinn með fullt af skemmtilegu fólki, gönguferð, grilli og hvítvíni í lange baner.
Helgina þar á eftir verður ættarferð á ættaróðalið Þaralátursfjörð á Hornströndum. Við Nonni og Anna sys og jafnvel einhverjir fleiri ætlum að fljúga á Ísafjörð og láta ferja okkur yfir Djúpið. Þaðan ætlum við svo að ganga yfir til Þaralátursfjarðar. Það verða 15-20 manns í firðinum með samkomutjald, góðan mat, gítar og ef ég þekki fjölskylduna rétt verður mikið fjör. Við systurnar ætluðum að fá okkur byssu- og veiðileyfi til að geta skotið í soðið en vorum aðeins of seinar svo við náðum því ekki. Gengur bara betur næst... (var þetta ekki 89 á stöðinni brandari?).

Á milli alls þessa er ég svo að reyna að byrja að skipuleggja partý aldarinnar (já, maður þarf að panta sal með árs fyrirvara!). Nonna finnst ég vera að pæla allt of mikið í þessu en ég held satt að segja að ég gæti alveg verið duglegri. Er greinilega ekki þessi blushing bride týpa. Það stendur þó til bóta þegar ég kem út en þá ætla ég að leggjast í brúðarblöð og brúðkaupssýningar. Vinkonur mínar mega fara að vara sig þegar ég kem heim með "bridesmaid" dressin fyrir þær. Þær þurfa samt að passa sig á rækjusalatinu og lakkríssprengjunum því ég býð bara þeim sem passa í kjólana. Moahaha...