Til hamingju Anna mannfræðingur!
laugardagur, febrúar 28, 2004
þriðjudagur, febrúar 24, 2004
Karlmannslaus á Massachussetts Registry of Motor Vehicles
Yeah, nýja uppáhaldslagið mitt. Torfi, þetta er allt öðruvísi lag en síðast. Þér á sennilega eftir að líka þetta mun betur. Tékk it át!
Annars er það helst að frétta að ég eyddi hálfum deginum á Commonwealth of Massachussetts Registry of Motor Vehicles. Borgaði $90 fyrir að skipta Georgia ökuskírteininu út fyrir Massachussetts skírteini og meðan ég bíð eftir nýja skírteininu geng ég um með A5 blað í veskinu sem er tímabundna ökuskírteinið mitt og mín einu skilríki. En það er mjög nauðsynlegt að vera með skilríki hérna til að komast á pöbbinn á kvöldin og til að kaupa áfengi í búðum (sem ég geri á hverjum degi... djók... eða ekki?). Eins gott að ég fái skírteinið fljótt. Hins vegar tókst mér ekki að láta skrá mig sem meðeiganda að bílnum og þ.a.l. ekki að fá bílinn skráðan hérna í fylkinu. Fer aðra ferð á morgun og þá með réttar undirskriftir... jei, alltaf gaman að flytja og þurfa að standa í svona löguðu.
Hei já, svo gleymi ég aðalatriðinu. Ég er nefnilega Nonnalaus fram á föstudag sem mér finnst alls ekki nógu skemmtilegt. Hlýjar kveðjur, slúður og gamansögur eru vel þegnar til að ylja mér við á síðkvöldum. Anna, geturðu ekki sent mér eitthvað af erótísku sögunum þínum?
Afmæli
Ég vil minna vini og velunnara mína á að í næstu viku á stórglæsilegur hópur af fólki afmæli. Má þar helst nefna Huldu Clöru, Páogol the Punisher, Hjördísi Þórey, Durbal og síðast en ekki síst yours truly. Greinilegt að sumarvertíðin skilar sínu...
Það fer því hver að verða síðastur til að senda glaðning yfir hafið og því ekki seinna vænna en að fara að huga að afmælisgjöfum. Til þess að hjálpa fólki hef ég sett saman lítinn lista yfir hluti sem mér myndi hugnast að fá í afmælisgjöf.
Puma íþróttagalli
Strigaskór
Taska
Gallabuxur
Spariskór (svartir)
Íslenskur brauðostur
Bunki af Séð og Heyrt
Fréttir (slúðursögur) að heiman
Glingur og skemmtilegir aukahlutir
föstudagur, febrúar 20, 2004
Working guy
Það er allt brjálað að gera hjá mér í vinnunni þessa dagana. Bæði er ég kominn með fullt af verkefnum og svo fer ég í ferðalag til Kanada á mánudaginn og verð í 4 nætur. Ég vonaðist nú eftir að vera sendur til Hawaii í fyrstu ferðina, en í staðinn er ég sendur í 30 stiga frost til bæjar sem er slatta fyrir norðan Calgary. Bærinn kallast Edmonton og er víst þekktastur fyrir að vera með stærstu Kringlu í heimi. Það eru víst rússíbanar inní mollinu og golfvöllur - trúi því þegar ég sé það. Það besta við mollið er reyndar það að ég þarf aldrei að fara útúr því þessar fjóra daga, þar sem bæði bankinn og hótelið mitt eru einmitt inní mollinu. Kannski maður skelli sér í golf líka.
Annars var mjög gaman í síðustu viku og mikið rokk á stelpunum. Ég og Birna skemmtum okkur konunglega í þær 2 mínútur sem við hittumst og svo drakk Rósa mig undir borðið á laugardaginn. Hún var nokkuð dugleg í GT, sem við strákarnir í 6X kölluðum alltaf "jólatré", man ekki af hverju.
Á morgun er svo þorrablót okkar Bostonverja. Þar verður aldeilis slett úr klaufunum og reittur í sig hákarl, a la Gestur. By the way, vitið þið að Gestur fékk að kaupa sér 50" sjónvarp? Brynja myndir aldrei gefa mér leyfi til slíkra kaupa, nema hugsanlega ef ég kæmist að sem viðfangsefni í "Queer Eye for the Straight Guy" og fengi koss frá goðinu hennar, honum Carson Kressley.
fimmtudagur, febrúar 19, 2004
Funky draumur
Mig dreymdi svo furðulegan draum í nótt að ég má til með að deila honum hérna og ef einhver kann draumráðningar væri ég til í að heyra hvað þetta þýðir allt saman. Draumurinn gekk semsagt út á það að Birgitta Haukdal hafði boðist til þess að vera "amma" heim hjá pabba og mömmu. Fyrir þá sem ekki vita þá eru "ömmur" oft fengnar til að vera heima á daginn þegar lítil börn eru á heimilinu, elda hádegismat o.s.frv. Hins vegar er ekkert lítið barn heima hjá m&p svo hún var mest bara að hanga heima og gera fólki óumbeðna greiða og fjölskyldan var yfirleitt frekar hissa á því hvað hún væri að gera þarna. Ekki nóg með það heldur var hún alltaf að senda mér eitthvað hingað til Boston. Man reyndar ekki hvað það átti að vera en hún skrifaði alltaf undir "Með kveðju frá ömmu Haukdal". Hvað þýðir þessi draumur?
Ég er að deyja úr harðsperrum í öllum líkamanum. Nú er Operation Wedding komin á fullt skrið og ég fór í Pilates í gær. Mér finnst sérstaklega sorglegt að vera að drepast svona mikið þar sem ég gat ekki einu sinni gert helminginn af æfingunum. Eða var allavega ekki mjög glæsileg að reyna. Kennarinn hreyfði sig eins og svanur við æfingarnar en ég var meira eins og kona á 18 tíma í fæðingarhríðum. En batnandi konu er best að lifa. Nú verð ég bara að vera dugleg að mæta í Pilatesið þannig að ég verði líka orðin eins og svanur eftir nokkrar vikur... hóst hóst... nokkra mánuði.
miðvikudagur, febrúar 18, 2004
F..k you, I don't want you back
Til hvers að vera með tengingu ef ekki til að ná í góða tónlist... jeeee! Annars ekki besta útgáfan, kanar eru svo miklar teprur.
Hér er ég... gettu hver? (Apinn... djók, smá einkahúmor)
Jæja, þá er ég loksins loksins loksins loksins komin á netið og aðdáendur síðunnar geta tekið gleði sína á ný. Ég biðst innilegrar afsökunar á því að hafa ekki farið í loftið í gær en við vorum víst aldrei heima þegar UPS ætlaði að koma með módemið svo ég þurfti að fara í þriggja tíma strætó- og lestarleiðangur í dag til að ná í það. En hvað legg ég ekki á mig fyrir netið?
Annars var lítið bloggað í síðustu viku enda var ég mjög upptekin við að skemmta gestum. Þetta verður því smá frétta og catch up blogg en von er á skemmtilegri bloggum á allra næstu. Ég er líka svo eftir mig eftir þessa þriggja tíma vesenis-ferð að andinn er ekki alveg kominn yfir mig.
Rósa fékk þann heiður að vera fyrsti gestur okkar hér í Boston og þar sem hún var líka fyrsti gestur okkar í Atlanta skipar hún ákveðinn heiðurssess í hjarta okkar skötuhjúanna. Reyndar voru smá hnökrar á prógramminu hjá mér vegna þess að við erum svo nýflutt hingað en ég held samt að hún hafi verið frekar sátt. Næstu gestir munu njóta þess að nú er ég orðinn host með reynslu. Rósa sló náttúrulega alveg í gegn og það eina sem ég get sett út á hana sem gest var hvað hún var löt að drekka. Ég sit hér uppi með næstum fulla tequila flösku, 3 hvítvín og 4 bjóra!
Bibba Töff kíkti líka við í tvo daga og þeim tíma var vel varið við hvítvínsdrykkju á Ritz, verslunarleiðangra og meiri hvítvínsdrykkju.... mmm. Stelpurnar stóðu sig reyndar ekki alveg nógu vel fyrri daginn í búðunum þar sem ég endaði með stærsta reikninginn eftir að hafa keypt mér alveg yndislegan kokteilkjól í Karen Millen. Nú bíð ég bara eftir að einhver bjóði mér í kokteil! En þær tóku vel við sér seinni daginn og ég gæti jafnvel trúað því að Birna hafi sett met í eyðslu per mínútu síðasta hálftímann í mollinu... haha.
More to come... Brynní
þriðjudagur, febrúar 10, 2004
Gummigellur
Jaeja, nu eru gummigellur ad tinast til Boston hver af annarri. The Rose kom a sunnudagskvoldid og vona a Bibbu Toff i millilendingu seinnipartinn og svo i tveggja daga djamm og shopping a morgun. Samkvaem sjalfri mer var eg ekkert buin ad skipuleggja turista- og safnapakkann sem Rosu langadi i en er buin ad skipuleggja verslunarleidangur thegar Birna kemur ut i ystu aesar. Svo er eg ad sjalfsogdu buin ad kaupa Margaritu, Strawberry Daiquiri mix, hvitvin og bjor fyrir longu sidan. Jeee... Birna kemur lika med Fred Segal bolinn minn og ymislegt fleira naudsynlegt sem gleymdist heima um jolin. Ekki amalegt.
sunnudagur, febrúar 08, 2004
Hæg tenging
Var ad fa tolvupost fra Verizon um ad DSL linan min yrdi tilbuin 17. februar. Tha hafa thau tekid ser naestum manud i ad tengja thetta hja mer... er ad spa i ad hringja og kvarta en held samt ad thad hafi ekkert upp a sig.
Annars vorum vid i frabaeru partyi i gaer hja islenskri stelpu. Fullt af (fullum) Islendingum og mikid fjor. Svo er The Rose a leidinni i rutu fra State College og kemur klukkan half tiu i kvold og Bibba Toff maetir a svaedid a midvikudaginn. Buin ad kaupa Margaritumix og Daiquiri hraefni... mmmm. Hey ja, og kannski er staersta frettin hedan fra Boston su ad vid Nonni keyptum okkur 27" sjonvarp a fimmtudaginn. Erum loksins komin med sjonvarp i USA.
miðvikudagur, febrúar 04, 2004
Slæm þjónusta
Eg veit ad addaendur sidunnar bida spenntir eftir ad vid faum netid heim en eg verd ad hryggja ykkur med thvi ad thad er ekki vona a thvi fyrr en 10. februar. Af hverju Verizon tharf rumar 2 vikur til ad tengja DSL linu veit eg ekki... en vid bidum spennt.
Eg hef thad mer til huggunar samt ad The Rose er vaentanleg til ad trylla lydinn her i Boston a morgun eda hinn og svo er aldrei ad vita nema Bibba liti lika vid. Get loksins komid nyja mixernum minum i almennilega notkun. Hlakki hlakk...
