mánudagur, mars 31, 2003

Þá eru myndakrækjurnar hér fyrir neðan komnar í lag. Ætla svo að uppfæra myndasíðuna með þessu öllusaman eftir Queuing prófið á eftir.

sunnudagur, mars 30, 2003

Rósa var svo almennileg að leyfa mér að setja krækjur í albúmin hennar frá jólafríinu hérna inn svo gjössovel...

Jólafrí á Flórída
Jólafrí í Atlanta

Aha, langt síðan ég hef bloggað í glasi. En þar sem ég er orðin 20+ ára þá er ég ekki svo mikill kjáni að fara að skrifa meira en þetta. Hje hje hje....

laugardagur, mars 29, 2003

Held ég fari og kaupi mér Missy Elliott diskinn.

Það verður að afsaka bloggleysið í gær en við erum löglega afsökuð þar sem vinkona okkar var í heimsókn hjá okkur í allan gærdag. Það var ekkert smá gaman hjá okkur. Við fórum í kerrunni upp í skóla og eyddum deginum þar. Hún skreið út um allt og var algjör engill.

Helgin verður erfið þar sem við þurfum bæði að læra helling sem væri allt í lagi svosem nema að veðrið er alveg fullkomið og þá er ekki hægt að sitja inni og læra. Kannski ég skreppi upp á þak í sólbað í svona klukkutíma.

fimmtudagur, mars 27, 2003

Sigurrósartónleikar í The Tabernacle í kvöld. Förum með Gesti og Lenu og Björgu og Þresti en þau eru íslensk hjón sem búa hér og við höfum aldrei hitt. Erum búin að liggja í nýja disknum síðan við fengum hann frá Önnu og Six í jólagjöf og get ekki beðið eftir að heyra þetta live. Þeir spiluðu reyndar mestmegnis sama efni og er á nýja disknum á tónleikunum sem við fórum á í Five Points í nóvember en nú þekkjum við tónlistina mun betur.

Svo er ég að spekúlera í að fara á Music Midtown hátíðina sem er hérna helgina strax eftir lokaprófin. Það var víst uppselt í fyrra og margar góðar hljómsveitir sem koma núna.

Allt að gerast.

Tokum I Spy med Eddie Murphy og Owen Wilson (sem er btw a minum topp 5 lista) i gaer. Thessi mynd fekk omurlega doma en eg verd ad segja ad mer fannst hun bara mjog fyndin. Enda getur Owen ekki klikkad.

miðvikudagur, mars 26, 2003

Undur og stormerki gerast enn. Sveitastelpan sá að sér og er aftur byrjuð að blogga.

... hver er Brynja
Nú gengur um net póstur þar sem að viðtakandi er beðinn um að svara nokkrum spurningum um sjálfan sig og senda svo áfram til vina sinna... kenningin er svo sú að með þessu móti komist maður að ýmsum staðreyndum um vini sína (þegar þeir svara og áframsenda). Ekki veit ég nú hversu miklar staðreyndir eru hér á ferð - en allavega, hér er mitt innlegg í umræðuna (hermt eftir Torfa og Önnu):
1. Hvernig býrð þú? Í One bedroom - one bathroom íbúð í Midtown Atlanta
2. Hvaða bók ertu að lesa núna? Straight from the Gut, ævisaga Jack Welch fyrrum forstjóra GE. Er reyndar búin að lesa 3 íslenskar glæpasögur, 6 Séð og Heyrt og 4 US Weekly samhliða þeirri lesningu.
3. Hvaða mynd er á músamottunni? Er ekki með slíkt en ef ég væri með væri það mynd af Nonna.
4. Uppáhalds spil? Gúrka (I am the Gurk-Master of OZ)
5. Uppáhalds tímarit? US Weekly, People, Cosmo, Séð og Heyrt... þið sjáið kannski trend hérna
6. Uppáhalds ilmur? konu eða karla? l'Occitane Vanilla hversdags og Armani Mania annars fyrir konur (eða mig sko) og Hugo Boss fyrir alvöru karlmenn.
8. Hræðilegasta tilfinning í heimi? Lofthræðsla
9. Hvað er það fyrsta sem þér kemur í hug þegar þú vaknar á morgnanna? Þegar ég vakna hress og fersk klukkan hálf átta á morgnana er mér bara gleði í huga yfir nýjum og spennandi degi. Stundum hugsa ég líka um öll þau spennandi verkefni sem bíða mín til að takast á við yfir daginn.
10. Rússíbani, hræðilegur eða spennandi? Úúúú... spennó
12. Hvað eiga ókomin börn þín að heita? Brynja og Jón Jr.
13. Uppáhalds matur? Kartöflusalat og súrar gúrkur
14. Súkkulaði eða vanilla? Vanilla
15. Finnst þér gaman að keyra hratt? Ójá
16. Sefur þú með tuskudýr? Já, ég sef með tuskufisk
17. Óveður, spennandi eða hræðilegt? Spennandi
20. Í hvaða stjörnumerki ertu? Ég er dagdreyminn fiskur
21. Borðar þú stönglana af brokkóli? Já
23. Ef þú mættir velja hárlit þinn hver væri hann? Ég VEL mér yfirleitt að vera ljóshærð nema annað slagið fæ ég mér dökkt svona til tilbreytingar.
26. Uppáhalds búð? Úha... Express, Abercrombie, AE Outfitters, Urban Outfitters, WetSeal... og svona mætti lengi telja
27. Uppáhalds þættir? 24 eru bestu þættir sem framleiddir hafa verið og S&C er líka alltaf skemmtó.
28. Notarðu fingrasetninguna á lyklaborðinu? Nei, ég skrifa allt (þ.á.m. þetta blogg) með því að pikka með tveimur puttum. Tekur því ekki fyrir mig að læra fingrasetninguna.
29. Hvað er undir rúminu þínu? Ekkert, ekki einu sinni ryk!
30. Hverju safnar þú? Engu held ég
31. Hvað myndir þú vilja finna upp? Veðurvél
32. Uppáhalds talan þín? Hef aldrei skilið þetta með að eiga uppáhaldstölu... til hvers?

Jæja, ég vona að þið hafið orðið einhvers vísari um mig af þessari lesningu. Ég lærði allavega heilmikið um sjálfa mig.

sunnudagur, mars 23, 2003

Jei, Óskarinn í kvöld og nú er aldrei að vita nema ég geti haldið mér vakandi yfir honum þar sem hann er nú á skikkanlegum tíma en ekki um miðja nótt eins og venjulega. Við Nonni ætlum að halda Óskars-grillveislu hjá Gesti og Lenu. Díllinn er sá að við komum með matinn og þau sjá um að eiga grill og sjónvarp þannig að allir græða.

föstudagur, mars 21, 2003

Helgi framundan og ég fílaða.

Athyglisvert að þeir sem standa að bókuninni í þessari frétt séu allir í stjórnarflokkunum. Dregur dáldið tennurnar úr henni...

miðvikudagur, mars 19, 2003

Aaaaaj Caramba hvað er leiðinlegt að læra fyrir próf!

Eg verd ad segja ad eg er ekki alveg sammala kvikmyndagagnryni Onnu Beib. Mer fannst Chicago alveg agaetis mynd, reyndar ekki 13 Oskarstilnefninga god en allt i lagi. Mer fannst hins vegar Moulin Rouge mun betri dans og songvamynd og eg gaeti truad ad Chicago se ad fa atkvaedi fullt af folks sem ser nuna eftir ad hafa ekki kosid MR.
Eg vona lika innilega ad CZJ fai ekki Oskarinn. Eins og hun er nu omurleg manneskja (hundrad milljonir skipta mig engu mali... muahaha) tha finnst mer hun bara ekki eiga neitt gott skilid. Fyrir utan thad ad Queen Latifah var mun betri i sinu hlutverki. Richad Gere er lika omurlegur eins og venjulega, eg er kannski ekki hlutlaus thvi hann er a listanum minum yfir otholandi leikara (asamt CZJ sem er thar reyndar vegna thess hvad hun er omulega glotud yfir hofud, Juliu Ormond og eflaust einhverjum fleiri sem eg man ekki eftir akkurat nuna).

Hins vegar fannst mer Gangs of New York OOOOOMURLEG!!!!! Hvernig er ekki haegt ad finnast thad?!!! Hvad er malid med soguthradinn og hverjum datt i hug ad rada Cameron Diaz i thetta hlutverk? Eins og eg fila hana vel sem leikkonu tha var hun omurleg i thessu hlutverki og thad hreinlega vegna thess ad hun passadi bara ekkert i thad. Daniel Day Lewis og Leo eru hins vegar ofsagodir.

Nog um kvikmyndagagnryni ad sinni. Eg er lika ad spa i ad fara ad henda sveitastelpunni ut af linkasidunni minni ef hun fer ekki ad sja ad ser og uppfaera siduna sina. Hun hefur viku til ad sanna sig!

mánudagur, mars 17, 2003

Ja nu aetla eg bara ad vera politisk i dag, enda ef ekki i dag hvenaer tha?

Mer list ekkert a throun mala hja forsetanum i thessu landi. Hvad er malid med thad ad aetla bara i strid gegn vilja flestra samstarfsrikja og thegna sinna og lita a thad sem "fyrirbyggjandi" adgerdir?

Hann er greinilega heldur ekki ad fatta af hverju Bandarikin urdu fyrir hrydjuverkaaras til ad byrja med... og hvad thad er sem hefur gert Bandarikin ad thvi storveldi sem thau eru i dag, nemlig ad standa fyrir rettlaeti og frelsi. Ef hann brussast afram med thetta strid sitt er eg ansi hraedd um ad hann muni uppgotva thetta tvennt med illu og of seint.

Mer finnst hann haga ser eins og fill i glerbud.

sunnudagur, mars 16, 2003

Fór í þetta fína facial í gær með Lenu. Kom okkur reyndar á óvart að við áttum að fara úr fötunum og klæðast í einhvern serk áður en gamanið byrjaði. Kom svo í ljós að það var ekki bara andlitið sem fékk meðferð heldur líka háls, herðar, hendur og hársvörður. Eftir þetta fengum við gellurnar, mjúkar í framan eins og barnsrass, okkur að borða á dáldið góðum stað sem ég fer örugglega aftur á.
Á meðan við stelpurnar vorum úti rasskellti Nonni hann Gest í FIFA playstation (segir Nonni) í fjóra klukkutíma.

Eftir þetta fórum við Nonni svo í smá afmælispartý hjá vinkonu minni. Spurning hvort botninn hafi verið dottinn úr því þegar við komum en það var allavega frekar dauflegt um að litast þegar við komum. Klukkan var samt ekki nema hálf tólf! Svo var þarna ansi athyglisverður Rússi sem ég þekki aðeins en hann dreif sig fljótlega eftir að við komum til þess að fara á djammið í Buckhead... einn! Já, hann stundar það víst mikið að fara einn á djammið í sínum heiðgula leðurjakka. Held að Rússar séu frekar spes stundum.

föstudagur, mars 14, 2003

Síðan óskar Önnu til hamingju með þetta. Það er alveg ljóst að þau geta farið að hlakka til að fá okkur Nonna í heimsókn.

Mér finnst eitthvað sorglegt við það að ég eigi helmingin af kommentunum í kommentakerfinu hérna.

Jess, grilltíminn byrjaður. Við vorum boðin í þetta líka frábæra grill hjá Gesti og Lenu í fyrradag. Held ég sé bara ennþá södd. Gestur grillaði af sinni alkunnu snilld og svo voru bakaðar kartöflur og alles. Mmmmm...

Annars er nóg að gera um helgina. Aldrei þessu vant er okkur boðið í partý og ekki bara eitt heldur tvö. Í kvöld er QCF (prógrammið hans Nonna) partý heima hjá einum strák og annað kvöld er afmælispartý hjá Adilku vinkonu minni (þessari sem heldur danspartýin). Aldrei að vita nema maður skelli upp eins og einu grilli líka.

Við vorum líka að frétta að sundlaugin á þakinu ætti að vera tilbúin um miðjan júlí þannig að fólk getur farið að skipuleggja heimsóknir til okkar eftir það. Við verðum reyndar ekki hér fyrr en í lok ágúst en Sean, leigjandinn okkar, ætti ekkert að kippa sér upp við nokkra Íslendinga að crasha á stofugólfinu.

miðvikudagur, mars 12, 2003

Ég er nú ekki alveg að skilja allan þennan ruslpóst sem ég fæ á hotmailið hjá mér. Einhvern tíman hef ég greinilega skráð mig einhvers staðar þar sem netfangið er gefið út og fæ nú að meðaltali 30 pósta á dag frá ýmsum aðilum sem eru að bjóða mér hina fjölbreyttustu þjónustu. Mikið af þessu er náttúrulega hið týpíska "hot and horny sex" dót en svo fæ ég líka auglýsingar um brjósta- og tippastækkunarmeðul, lyf sem láta manni líða vel en eru samt ekki eiturlyf (einmitt...) o.s.frv. (Ef einhvern vantar svona dót get ég verið milligöngumaður, fullrar nafnleyndar heitið).

Í morgun fékk ég svo póst með titlinum "Do you want to feel 100 years younger?". Eeee, nei takk! Þá væri ég -75 ára (all í lagi... -73). Get ekki ímyndað mér að það sé skemmtilegur aldur. Spurning hvort það sé gott markaðsmódel að vera með markhópinn 100 ára og eldri?

Allavega, þetta er skýringin á því að ég er komin með nýja hotmail addressu en ég nota samt GATech addressuna langmest.

þriðjudagur, mars 11, 2003

úbbs, hér fór inn vitlaust blogg...

mánudagur, mars 10, 2003

Þá er springbreikið búið og við lærðum ekki neitt! Vorum með mikil plön fyrir fríið en ég er búin að ákveða að vera ekki með sammara og líta bara svo á að ég komi fersk, endurnærð og tvíefld til leiks eftir góða hvíld.

Í gærkvöldi héldum við upp á það að góða veðrið er að aukast og borðuðum í fyrsta skipti úti á þessu ári. Með úti þá meina ég undir beru lofti... víííí. Mér finnst alltaf jafn huggulegt að sitja úti á góðri kvöldstund og borða með skemmtilegu fólki (í þessu tilviki Nonna) og vera ekki kalt!

Nonni gleymdi að minnast á það í ferðasögunni að hótelið hefði verið úti í rassgati, það var eiginlega úti í mýrinni, í svona iðnaðarhverfi, 20 mínútna bílferð frá bænum og þvílíkur subbuskapur! Í anddyrinu mætti manni þessi líka viðbjóðslega fúkkalykt, málningin var flögnuð alls staðar og það voru hár í baðkerinu. Fyrir þetta borgar maður svo $120 fyrir nóttina (venjulegt verð er svona $25). Ekki eins og maður sé eitthvað mikið að hanga á hótelinu á Mardi Gras en samt...

sunnudagur, mars 09, 2003

Loksins loksins... myndirnar úr ferðalaginu eru komnar ásamt nokkrum myndum af Huldu Clöru, kagganum og eldhúsinu okkar. Lykilorðið það sama og venjulega, senda línu á mig ef ykkur vantar það.

Myndir úr köfuninni um jólin eru á leiðinni...

Mardi Gras
Á mánudaginn í síðustu viku héldum við Brynja á Mardi Gras hátíðina í New Orleans. Með í för var einnig par frá Búlgaríu og einn strákur frá Pakistan sem er í bekknum mínum. Ferðin hófst á 8 klst. akstri til að komast á svæðið og fór mestur hluti ferðarinnar í að rekja garnirnar úr pakistanska vini okkar um venjur í landinu hans og aðallega hvernig konu hann ætti og mætti finna sér. Hann hefur ekki verið við kvenmann kenndur til þessa og verður að halda sig frá þeim furðulegu verum þar til móðir hans hefur fundið handa honum hentuga brúði. Hann fær reyndar að velja á milli nokkurra stelpna og getur einnig skilað þeirri sem hann velur innan þriggja mánaða ef galli reynist á vörunni.

Við komum til New Orleans í kringum kvöldmatarleytið á mánudaginn í mígandi rigningu og minnti því stemningin um kvöldið mest á Íslenska útihátíð. Munurinn var reyndar sá að þarna gat maður brugðið sér inn á matsölustaði og jazzklúbba til að þerra sig að utan en væta sig að innan. Mardi Gras hátíðin er karnival af bestu gerð og er mikið af skrúðgöngum út um allan bæ og fólk keppist við að klæða sig upp í furðulega búninga og skemmta sér og öðrum. Sjá má á myndunum sem Brynja ætlar að setja inn seinna í dag dæmi um óvenjulegan klæðaburð og stemninguna á svæðinu. Einkenni hátíðarinnar í New Orleans er hins vegar það að fólk hendir perluhásfestum (gervi) út í mannskarann og keppast náttúrulega allir við að ná sem flestum og flottustum perlum. Er til þess ætlast að stelpurnar sýni á sér brjóstin í þessum tilgangi og eru þær náttúrulega margar sem taka það bókstaflega og flagga sínum tveimur fegurstu í allra sýn. Bæði er þar um að ræða atvinnukonur í faginu en einnig hálfgerða nýgræðinga á öllum aldri, stærðum og gerðum. Pakistaninn í hópnum okkar var eins og gefur að skilja dáleiddur yfir því sem hann sá og naut sín alveg sérlega vel. Reyndi hann náttúrulega að ná sem flestum af flössurunum með sér á filmu og fékk meira að segja að kyssa nokkur pör af brjóstum.

Við eyddum þriðjudeginum í að skoða skrúðgöngur og þræða barina í franska hverfinu. Um kvöldið var svo haldið áfram í perlustemningunni og einnig fórum við inn á blúsklúbb þar sem ein "big mama" fór alveg á kostum - þvílík söngkona. Á miðnætti endaði svo hátíðin formlega og var þá ekkert verið að dútla við hlutina heldur lokuðu allir barir og sölubásar á svæðinu um leið og göturnar tæmdust. Við sáum því sæng okkar útbreidda og skelltum okkur heim á hótelið okkar, sem var alveg sérlega glæsilegt - eða ekki.

Við Brynja keyrðum svo heim á miðvikudeginum og stoppuðum náttúrulega í Kentwood, Louisiana, til að skoða Britney Spears safnið. Safnið reyndist vera frekar sorglegt og fengum við þá skýringu að Britney væri svo upptekin að hún hefði ekki haft tíma til að koma minjum sínum til safnsins. Uppeldisbær stjörnunnar var ekki heldur mikið fyrir augað og stendur svo sannarlega undir nafninu krummaskuð.

Eftir að hafa vottað Britney Spears virðingu okkar keyrðum við af stað til Atlanta og lentum strax í grenjandi rigningu og það rigndi stanslaust á okkur í 9 klst. og í fjórum fylkjum. Einnig var stanslaust verið að vara við hverfilbylum á svæðinu sem við vorum að keyra á en sem betur fer sáum við ekkert svoleiðis fyrirbæri. Við lentum svo heil og sæl í Atlanta um 11 á miðvikudagskvöldið og erum búin að liggja í leti síðan þá. Reyndar mættum við í partý í gær til að halda upp á 1 árs afmæli hennar Huldu Clöru Gestsdóttur og var það náttúrulega svakaleg stemning.

laugardagur, mars 08, 2003

Ég fékk The Facial á aðal Celeb spa-inu hérna í ATL frá Gesti, Lenu og Huldu í afmælisgjöf, ekkert smá sátt :)

Ekki fara á Tears in the Sun!!! Hún er ömurleg og við vorum bæði á því a labba út þegar myndin var hálfnuð. Sátum þó til enda og sjáum mikið eftir þessum tveimur tímum. Eftir Maid in Manhattan og Tears in the Sun klúðrin erum við nú komin með þá reglu að fara ekki á mynd nema okkur langi bæði á hana...

föstudagur, mars 07, 2003

Ok ok, ferðasagan er á leiðinni. Nonni fékk það hlutverk að setja hana inn. En á meðan vill síðan að óska öllum þeim sem eru búin að eiga afmæli síðustu vikuna til hamingju með daginn. Hjördís og Pagol, Brynní (25, enn er tekið á móti hamingjuóskum og gjöfum) og Annie, Hulda Clara og Helga og að lokum... Durbal.

Finnst eins og ég sé jafnvel að gleyma einhverjum mikilvægum í þessari upptalningu... bæti því þá við síðar.

Annars er veðrið aftur orðið gott hér í borg geðklofa veðurs þannig að plön okkar um að læra í dag hafa verið sett til hliðar og í staðinn höfum við fengið lánað barn til að fara með í Piedmont Park. Lena ætlar að koma hingað og fá grjónagraut í hádeginu og svo þarf hún eitthvað að útrétta og var fegin að geta lánað út HC á meðan ;)

Ein hugleiðing. Ef einhver gleymir því að hann á afmæli þar til svona þrjú á afmælisdaginn, er þá í lagi fyrir maka viðkomandi að hafa gleymt því líka?

miðvikudagur, mars 05, 2003

Komum heim degi fyrr en áætlað var vegna rigningar. Rigndi á okkur í fjórum fylkum í dag en samt geðveik ferð... Ferðasagan kemur á morgun svo þið getið farið að hlakka til!

sunnudagur, mars 02, 2003

Þetta er nú aldeilis búin að vera fín helgi. Eins og Nonni skrifaði hér síðast þá fengum við okkur smá í tánna á föstudaginn og slöppuðum svo bara vel af í gærdag. Kíktum aðeins í mollið og ég keypti mér þessa fínu sandala í afmlisgjöf frá Nonna. Um kvöldið fórum við svo í pizzu til Gests og Lenu og Maya nágrannakona þeirra kom yfir með My Big Fat Greek Wedding á DVD. Í morgun fékk ég pönnukökur í rúmið af því að við verðum með 5 öðrum í hótelherbergi í New Orleans á afmælisdaginn minn. Ég fékk líka óvænta afmælisgjöf frá Nonna en það var gallajakki sem hann keypti fyrir tveimur mánuðum! Rosaflottur en því miður ekki rétt stærð svo það varð að skila honum (rétt stærð ekki til). Dáldið svekkjó en við finnum annan...

Í morgun varð líka að drífa sig til Gests og Lenu að horfa á Liverpool mala Man.U í bikarúrslitakeppni (Jeeee!) og svo þegar við ætlum að fara varð Hulda Clara svo sár að hún fór að hágráta og rétti hendurnar til okkar til að láta okkur taka sig... Ekkert smá sæt og Gestur og Lena sögðu að hún geri þetta ekki einu sinni þegar þau eru að fara eitthvað. Litla krúsídúllan.
Það má líka upplýsa það núna að við gáfum henni pínulitla Nike strigaskó í afmælisgjöf og hún var engin smá dúlla þegar hún var komin í þá.

Svo er það bara New Orleans í fyrramálið. Verður smá hlé á blogginu fram á föstudag nema við komumst á netkaffi.

Rock on!

laugardagur, mars 01, 2003

Í gær fórum Brynja á djammið. Kvöldið byrjaði með því að ég eldaði sérréttinn minn, grænmetissúpa a la Nonni, og fékk náttúrulega mikið hrós fyrir. Þar næst fórum við í partý sem húsfélagið okkar stóð fyrir og fór það fram á stað sem heitir Leopard Lounge og er alveg sérlega "chesee". Það helsta sem gerðist þar að það var tilkynning að sundlaugin sem á að byggja á þakinu hjá okkur verður tilbúin í byrjun júlí og við getum því kælt okkur í henni þegar við komum aftur til Atlanta í haust, við verðum sum sé heima í sumar. Eftir einn drykk á Leopard lounge héldum við skötuhjúin á Twisted Taco þar sem Brynja hélt áfram að hlaða í sig hvítvíninu en ég komst upp á bragðið með að drekka bananamargarítur. Seinna um kvöldið komu bættust svo nokkrir strákar úr QCF prógramminu mínu í hópinn, en engin stelpa, Brynju til mikils ama. Ég átti sérlega skemmtilegar samræður við einn Indverja úr hópnum um tilgang lífsins og merkilegt hvað margarítur hjálpa manni að sjá lífið í skýru ljósi. Indverjinn hélt því reyndar fram að til að geta orðið hamingjusamur að þá verði maður að fylgja þeim venjum sem ætlast er til af manni og hluti af því er að reyna allt sem maður getur til að borga foreldrum sínum, og guði náttúrulega, fyrir allt sem þau hafa gert fyrir mann. Samkvæmt honum getur maður reyndar aldrei endurgoldið foreldrum sínum allt sem þau hafa gert, sama hversu mikið maður reynir. Hann heldur því hins vegar fram að maður geti hugsanlega endurgoldið kennurum sínum fyrir það sem þeir hafa kennt manni og máli sínu til stuðnings nefndi hann dæmi um mann sem hafði lært að skjóta af boga og þegar hann var fullnema að þá skar hann af sér þumalinn og gaf kennaranum sínum. Með þessu endurgreiddi hann kennaranum sínum að fullu en gat hins vegar aldrei skotið af boga aftur. Það má svo kannski minnast á það að hann mun fara heim til Indlands í sumar þar sem foreldrar hans verða búin að velja ca. 10 hugsanlegar brúðir sem hann getur svo valið á milli.

Jæja, nóg af rausi, ég ætla að skella mér í Kringluna með henni Brynju og leyfa henni að velja sér hluta af afmælisgjöfinni sinni.