föstudagur, september 30, 2005

Klukk Kjartan

Mér hefur borist ósk um klukk. Klukk Kjartan!

miðvikudagur, september 28, 2005

Klukkuð

Hver þremillinn, mér varð að ósk minni og var klukkuð af henni Önnu.

Here goes...
1) Ég bjó í Svíþjóð í sex ár og dýrka land og þjóð.
2) Ég er haldin sjúklegum valkvíða þegar kemur að öllum húsbúnaði og innréttingum.
3) Ég sé eftir þremur ákvörðunum sem ég hef tekið.
4) Uppáhaldsþátturinn minn þessa dagana er breska sápan Cutting It á fimmtudagskvöldum á RÚV.
5) Ég var klukkutíma að skrifa þennan lista.

Ég ætla hins vegar ekki að klukkka fleiri. Enda var ég örugglega síðasta manneskjan á Íslandi til að vera klukkuð.

þriðjudagur, september 27, 2005

Klukk, svik og prettir

Baugsmálið fyrir byrjendur - venslakortið á Baggalút er algjör snilld.

Annars fékk ég það eins og blauta tusku framan í mig í dag að taskan mín sé uppseld loksins þegar ég reddaði fari fyrir hana heim til mömmu sinnar (mín) á Íslandi. Í örvæntingu minni dreif ég mig á netið og fann heimasíðu framleiðandans þar sem biðu mín svona sjö töskur í viðbót. Ég vona bara að andsk..... kellingarnar sem keyptu töskurnar njóti þess að ganga um með tösku with my name written all over it.


Annars sit ég bara við tölvuna þessa dagana og bíð eftir að einhver klukki mig. Ég er sko löngu tilbúin með listann minn.

sunnudagur, september 25, 2005

Könnun

Á myndinni er Nonni eins og

a) Ógnvænlegur ísbjörn sem mun rífa í sig næsta fórnarlamb á hverri sekúndu.
b) Kærleiksbjörn.

sunnudagur, september 18, 2005

Gúmmígellur í Köben


Það er óhætt að segja að gúmmígellur hafi tekið Kaupmannahöfn með trompi um daginn.

Fyrir þá sem ég var búin að lofa blonde mynd þá er það innifalið.

Og að lokum ein spurning: Er þetta ekki eitthvað sem ég þarf að eignast?