þriðjudagur, september 30, 2003

NEEEIIII!!!

Var að fá að vita hvenær take-home prófið í statistics er. En það er einmitt í næstu viku og svo fáum við rúma viku til að leysa það af því að við erum með frídaga þarna inni en... þetta eru akkúrat frídagarnir og helgin sem ég verð í LA. Nú er um að gera að halda vel á spöðunum til að þetta eyðileggi ekki LA fyrir mér því það kemur bara ekki til greina.

Ég ákvað reyndar á sunnudagskvöldið að fara að taka mig á vera "Gáfaða" Brynja næstu tíu daga. Fékk hálfgert overdose eftir að hafa horft á Sex and the City og lesið slúðurblöð alla helgina. Ekkert DVD gláp (eins gott að við erum búin með 24), slúðurblöð og netvafur. "Silly" Brynja er komin í smá pásu þangað til við förum til LA.

sunnudagur, september 28, 2003

Baby Shower

Þá er þessi helgi senn á enda. Það hefur helst gerst að ég fór í mitt fyrsta Baby Shower í dag og Nonni er veikur.

Maya nágrannakona hélt semsagt Baby Shower í dag fyrir Lenu (og Gest). Þetta var líka svona ofsalega skemmtilegt að ég held að ég haldi svoleiðis framvegis fyrir óléttar vinkonur mínar (stelpur, drífa sig). Það var lunch og svo ísskaka á eftir og svo var farið í leiki og gjafirnar opnaðar. Ég vann m.a.s. verðlaun fyrir að gera besta baby-outfittið með klósettpappír á fullorðinn karlmann með bleyju og öllu. Flottasta gjöfin var að sjálfsögðu frá okkur Nonna en við gáfum þeim Georgia Tech samfellu og tuskuhreyndýr. Vorum reyndar búin að gefa þeim líka ofsalega sætar, skærbleikar flíspeysur í stíl á systurnar. Eins gott að þetta verði stelpa!

Á föstudaginn skelltum við okkur aðeins út á lífið og aumingja Nonni var grunsamlega þreyttur í gær. Við tókum daginn reyndar snemma þar sem Gestur og Nonni ætluðu að spila fótbolta í Piedmont Park klukkan tíu. Við Hulda og Lena fórum á róló á meðan og svo fengum við okkur hádegismat saman. Um kvöldið var búið að plana kanakvöld hjá Gesti og Lenu en eftir að hafa öll gætt okkur á Mangókjúlla a la Bjargey (mmm...) þá var Nonni orðinn svo slappur að við þurftum að drífa okkur heim. Og viti menn, hann var með 39 stiga hita greyið og hefur legið síðan eins og klessa uppi í sófa en er á bataleið.

miðvikudagur, september 24, 2003

Það sem allir hafa beðið eftir

Það sem allir hafa beðið eftir... 


Brynja´s Best and Worst Dressed @ Emmy2003

 

Þá er listinn loksins loksins fullbúinn. Ástæðan fyrir því að ég geri þennan lista er sú að ég er alls ekki sammála Best/Worst Dressed listunum sem slúðurblöðin mín eru með. Ég átti mun erfiðara með að finna kandítata á best dressed listann en worst dressed. Margar style-stjörnur (eða fashionistas eins og við sérfræðingarnir köllum þær) eins og Jennifer Aniston sem venjulega slá mjög í gegn voru ekki að gera neitt spes hluti. Ekkert ljótar en eiga samt ekki skilið að komast á neinn lista. Jennifer var í ágætis kjól en allt of stuttum og svo vantaði náttúrulega aðal accessorið hennar, hann Brad. Í þessum flokki eru líka Alicia Silverstone, Courteney Cox og Jennifer Garner. Listinn er ekkert endilega í neinni sérstakri röð.


Enjoy!

Best Dressed
* Þrátt fyrir að fólk hafi þurft að setja upp sólgleraugu til að horfa á Christina Applegate á sviði vegna glampa af lélega meik-djobbinu hennar þá fannst mér kjóllin hennar mjög sætur og hárið hennar var æði. Fyrir utan förðunina var þetta mjög heilsteypt og flott lúkk sem hún bar mjög vel. Þess má líka geta að hún vann óverðskulduðustu verðlaun hátíðarinnar fyrir gestahlutverk sitt í einum lélegasta Friends þætti sögunnar.

* Edie Falco fannst mér mjög smekklega klædd og hún bar kjólinn sinn mjög vel. Mér finnst hárgreiðslan kannski aðeins og stíf en gengur samt alveg, sérstaklega fyrir konu á hennar aldri. Hún fær líka nokkra bónuspunkta fyrir að hafa púllað þetta lúkk því hún er venjulega mjöööög ósmekkleg.

* Patricia Heaton fannst mér eiginlega sigurvegari hátíðarinnar hvað útlitið varðar. Kjóllinn alveg geggjaður og tummytuckið og boob-jobið hafa greinilega verið totally worth it! Hárið á henni og förðunin pössuðu líka mjög vel við þetta og sem heildarlúkk er þetta sigurvegari hátíðarinnar að mínu mati. Einfalt og frjálslegt!

* Ég á ekki mynd af Courteney Thorne-Smith en hún fannst mér vera mjög flott. Reyndar skemmir aðeins fyrir að ég er persónulega ekki mjög hrifin af svona up-doo greiðslum en hún púllaði þetta allt mjög vel. Fær líka nokkra punkta fyrir að viðurkenna að það hafi nú ekki verið neitt grín að komast í kjólinn.

*Allison Janney finnst mér alltaf jafn flott. Hún er bara svo há og glæsileg og velur alltaf einföld og smekkleg föt. Ekkert svona frilly frill... sem er gott.


Worst Dressed
* Kim Cattrall er að reyna allt allt of mikið að vera eitthvað forty-something sex kitten. Liturinn á kjólnum gerði ekkert fyrir hana og mér fannst hann almennt bara ljótur og trying way to hard.

* Þrátt fyrir að vera í fallegasta kjól hátíðarinnar og vera á öllum best dressed listum verður Sarah Jessica Parker að fara á Worst Dressed listann minn. Var ég sú eina sem tók eftir því að það var 20 sm bil á milli bringunnar á henni og kjólsins?!!! Mér finnst algjört lágmark að passa í kjólinn. Það hefði mátt eyða tveimur tímum í viðbót við þessa 250 sem það tók að gera kjólinn til að sníða hann aðeins til á hana.

* Debra Messing vann næst óverðskulduðustu verðlaun hátíðarinnar (hver þolir neurotic vælukjóann og ofleiknu Grace?) og var í einum ljótasta kjólnum. Hann minnir mig á karamellubréf og svo var hann ekki að gera neitt fyrir hana chest-wise.

* Stockard Channing var alveg off og er ásamt Paula Abdul á öllum worst dressed listunum. Ég efast stórlega að þær hafi haft stílista fyrir hátíðina. Ef svo er hafa þeir framið faglegt sjálfsmorð með því að senda þær svona út úr húsi.

* Cheryl Hines er á flestum best dressed listunum og er einmitt ein ástæða þess að ég sá mig knúna til að leggja orð í belg. Gæti hún verið uppstrílaðri og stífari?!! Ég held ekki. Og omg, hvað kjóllinn er ljótur. Hún er eins og jólatré aumingja konan.

* Joan Rivers, aðal tísku-gúruinn sjálf lendir á flestum worst dressed listum. Held að outfittinu hennar hafi verið best lýst með orðum eins viðmælanda hennar þegar hann sagði "I fell like I´m talking to a tree".

* Cynthia Nixon, á ekki mynd en hugsiði ykkur Miröndu í rústrauðum, leður-balletkjól... nei einmitt, ég hélt ekki.

* Að lokum fá tveir karlmenn, Joe Pantoliano og Robin Williams, sæti á þessum lista. Myndirnar segja allt sem segja þarf.

Kjánalegt

Ég velti því stundum fyrir mer hvað fólk er að hugsa þegar eg les svona frettir. Hvernig dettur fólki i hug ad bidja um 20 milljona fjarfestingu fra rikinu fyrir eina manneskju? Thad er haegt ad kaupa fint einbylishus i Reykjavik, svo ekki se minnsta a annars stadar a Vestfjordum, fyrir minni pening.

sunnudagur, september 21, 2003

Aðskilnaður

Við skötuhjúin dembdum okkur út á lífið í gær með vinum okkar, þeim Dan og Matt. Fyrst hituðum við reyndar upp með því að horfa á tvo þætti af 24 og súpa smá hvítvín. Djammið var svo sum í rólegri kantinum enda voru strákarnir hálf þreittir. Það verður reyndar að segjast eins og er að við höfum nú ekki hitt marga svera djammara hérna í Ameríkunni, allavegana ekki neina sem eiga roð í Illa Skeindan og Pippa Þorsk.

Eitt við næturlífið í Atlanta sem mér þykir mjög merkilegt er að það er ótrúlega mikill aðskilnaður á milli kynþátta á skemmtistöðunum. Á staðnum sem við vorum á í gær voru t.d. eingöngu hvítt fólk en á staðnum hinum megin við götuna var ekkert nema svertingjar. Þessi aðskilnaður sést reyndar víðar, t.d. er þjónustufólk mjög gjarnan svart en stjórnendur hvítir. Það er meira að segja algengt að í matvörubúðum séu allir starfsmennirnir svartir nema búðarstjórinn, sem er vitanlega hvítur. Það eru náttúrulega margar ástæður fyrir þessu og margar hverjar rótgrónar í samfélagið. Það virðist þó vera að blökkumennirnir leggi einfaldlega minni áherslu á menntun og treysti meira á íþróttahæfileika og rapp.

laugardagur, september 20, 2003

Misskilningur

Hann Nonni minn hefur oft verið kenndur við Celine Dion og er af mörgum talinn vera einn helsti aðdáandi hennar. Þetta er reyndar hinn mesti misskilningur og stafar held ég af því að einhvern tíman í gríni sagðist hann fíla hana. Ég get hins vegar borið vitni um það að hann fílar hana alls ekki og þjáist mikið þegar ég er að hlusta á hana (Surprise! Ég er laumu Celie Dion aðdáandi og langar rosalega á showið hennar í Las Vegas. Veit reyndar að mörgum finnst ég vera með ömurlegan tónlistarsmekk (þ.m.t. mér sjálfri), svo þetta kemur kannski ekki öllum á óvart, en ég get ekkert að þessu gert. Celine, JC Chasez, Justin, Britney, P. Diddy og Mariah, ég fíl'ykkur!).
Hins vegar get ég gefið þeim sem finnst gaman að gera grín að tónlistarsmekknum hans Nonna smá hint með annan tónlistarmann sem hann virkilega fílar, og þetta er ekki grín... Hello!

P.s. Ég hef ákveðið að herma eftir öðrum með að hafa titla á færslunum mínum þar sem það gerir þetta allt svo miklu skipulegra eitthvað.

P.p.s. Ástæðan fyrir því að ég er í tölvunni núna er að klukkan er bara að verða níu og við erum búin með 24-skammt dagsins. Úúúú... hlakka til á morgun.

P.p.p.s. Ég drakk rúmlega hálfa hvítvín yfir 24 áðan... híhí.

Nú verður lítið bloggað á næstunni þar sem við erum alltaf að horfa á 24.

Við vorum barnapíur í gær. Lena kom með HC klukkan 10 um morguninn og kom ekki aftur að sækja hana fyrr en klukkan sex. Við fórum í Piedmont Park á róló, hoppuðum í rúminu og svo "hjálpaði" hún okkur að taka til og þvo. Mjög dugleg.

fimmtudagur, september 18, 2003

Tölvan komin úr viðgerð, fyrstu þættirnir úr seríu 2 á eldhúsborðinu og Nonni er að ná í Nancy´s pitsu (sem eru btw bestu pitsur sem hafa verið fundnar upp)... perfect! Held að Baldur hafi haft rétt fyrir sér þegar hann sagði að þetta yrðu sennilega fimm vídeókvöld í röð.

Smá hugleiðing... af hverju kýs ca. tvítugur, myndarlegur, ungur maður að vera með yfirvaraskegg og skálaklippingu sem hann greiðir í píku? Why, why?!!!

We are the champions!!! Það var eiginlega hálf sorglegt hvað við pökkuðum Gesti og Lenu vel saman í kana í gær. Nonni átti reyndar leik kvöldsins þegar hann sagði 12 og fékk 9 slagi, þar af fékk Gestur 3 slagi... guess you had to be there.

Annars erum við farin að ganga með gemsann á okkur allar stundir núna þar sem Lena er að sigla inn í 38. viku og aldrei að vita hvenær barnið ákveður að koma. Það er reyndar sett 9. október sem er alveg ómöguleg dagsetning þar sem við verðum í LA (jee!) frá 9. til 14. október. Mikil pressa á Lenu að drífa barnið í heiminn annað hvort fyrir eða eftir þann tíma... haha.

Ætlum í kvöld að ná í nýju gleraugun hans Nonna og svo að ná í tölvuna úr viðgerð. Ég yrði ekki hissa ef við myndum koma við á Blockbuster á leiðinni heim og ná í fyrstu þættina af Jack Bauer og félögum úr seríu 2.

miðvikudagur, september 17, 2003

Eins og sja ma her til hlidar er akvedin gerjun i gangi a thessari heimasidu. Meira seinna...

Síðan óskar afmælisbörnum dagsins til hamingju með daginn. Sérstaklega sendir síðan stuðkveðjur til Evu Ben í Reykjavík sem verður rétt rúmlega fimmtug í dag. Til hamingju með daginn!

Annars er sólbrunin að hjaðna núna og við keppumst við að flagna í framan. Tölvan er loksins loksins að koma úr viðgerð í dag eða á morgun... veivei. Þá er stefnan tekin á Blockbuster kvöld með Jack Bauer og félögum. Get ekki beðið.

mánudagur, september 15, 2003

Það er rosalega mikið af flottum bílum í bílastæðahúsinu í húsinu okkar. M.a. gulur Hummer jeppi (Gestur er dáldið abbó) og hellingur af flottum BMW-um. Einn bíllinn er eldrauður Lexus sportbíll, mjög flottur, sem væri svosem ekki í frásögur færandi nema að aftaná bílnum er risa límmiði. Við erum að tala um svona 50x20 sm og á honum stendur "We Earned It!". Tekur dáldið klassann af því að eiga klassa bíl ekki satt?

Annars smá samantekt af helginni:
Spiluðum tennis og sóluðum okkur á þakin í tvo tíma á laugardaginn => sólbruni.
Fórum um kvöldið með Matt og nokkrum vinum hans á nett djamm. Enduðum á Disco Diner sem er mjög sveittur diner rétt hjá okkur.
Nonni keypti sér ný gleraugu í gær.
Annars var lært mikið og svo endaði helgin á bíóferð í gærkvöldi. Once upon a Time in Mexico. Ekkert spes mynd en alveg í lagi og fullt fullt af flottu fólki í henni.

sunnudagur, september 14, 2003

Nýjar myndir:

Six flags og vinir okkar (á ensku til að þeir geti líka skoðað)

Ýmislegt - blanda frá Íslandi og Atlanta

Sama lykilorð og venjulega

þriðjudagur, september 09, 2003

Bara svo thad se a hreinu. Forum i Best Buy a sunnudaginn med tolvuna i vidgerd og faum hana ekki fyrr en eftir naestu helgi => Minna bloggad en venjulega. Vid nadum ekki ad kaupa stafraena myndavel thar sem vid vorum ekki buin ad vinna heimavinnuna okkar og fannst daldid geyst ad kaupa bara $500 vel a stadnum.

Eg aetla thvi ad koma af stad sma konnunum herna a kommentakerfinu:

KONNUN #1:
Hvernig stafraenar velar a folk og hvernig hafa thaer reynst?
Borgar sig ad borga helling fyrir 4 mpixel frekar en 3.2?
Skiptir zoomid mali?Hvad a madur ad kaupa stort minniskort?
Skiptir mali hvada tegund er keypt?
O.s.frv.

KONNUN #2:
Hver a ljosblaa, thunna jakkann sem gleymdist i Eurovision partyinu sem vid heldum hja Laru?

Eftir Best Buy a sunnudaginn forum vid i thennan fina kjulla hja Mayu (nagrannakonu Gests og Lenu). A eftir klippti eg Huldu Cloru (nokkur har) og Gest og thau hjonin launudu okkur med thvi ad vinna okkur aftur i Kana! Fussum svei! Vid stefnum a rematch hid fyrsta og aetlum okkur ekkert annad en sigur i hjona/parakeppninni. Vid erum byrjud ad vinna i allfloknu svindlkerfi svo thau munu ekki eiga sens i okkur naest...

sunnudagur, september 07, 2003

Jaeja, tha er sidan komin i lag. Buin ad uppfaera linkana her til hlidar og setja linka a nyju myndasidurnar inn a myndasiduna.

Verd ad kommenta a stadinn sem vid forum a i gar. Algjor snilld! Einn besti matur sem eg hef fengid, kjotid bradnadi uppi i manni og svo var kokkurinn og stemmningin bara svo skemmtileg. Fyrir utan godan felagsskap :) Thad er alveg ljost ad allir gestir sem koma til okkar hingad fa ferd a thennan stad.

Var ad heyra utan af mer ad folk vaeri farid ad halda ad vid vaerum bara alltaf ad skemmta okkur herna i ATL og gerdum aldrei neitt af alvoru. Thad skal tekid fram ad vid erum mjog dugleg ad laera og mikid ad gera i skolanum. T.d. tha voknudum vid fyrir niu baedi laugardag og sunnudag, forum i raektina og svo a bokasafnid ad laera i 4 tima i gaer og 5 i dag. Og thetta er helgarplanid thegar kona a ad vera i afsloppun.

A eftir verdur svo gerd ca. fimmta tilraun okkar til ad kaupa stafraena myndavel i Best Buy og fara med tolvuna i vidgerd. Vonandi tekst thad i thetta skipti. A eftir er stefnan sett a Kana-keppni hja Gesti og Lenu en vid Nonni eigum harma ad hefna fra thvi i sidustu viku thegar kom i ljos ad Lena er einkar mean kana-spilari. Hefdi ekki truad ad oreyndu ad Lena aetti thad til ad vera svona illgjorn. Gestur, hins vegar, verdur ad teljast mjog heppinn i spilum. Sjaum hvad setur a eftir...

laugardagur, september 06, 2003

Vorum að koma heim úr dýrindis kvöldverði með Gesti og Lenu. Þau skötuhjúin fengu pössun fyrir Huldu Clöru og við skelltum okkur því á japanskan veitingastað sem býður helst upp á rækjur og nautasteikur. Ég sem hélt að Japanir borðuðu bara sushi og hvalkjöt. Þessi ferð var sennilega merkilegust fyrir það að í fyrsta skipti á ævinni var ég ekki sá fyrsti á borðinu til þess að klára matinn minn. Hún Lena tók mig alveg í bakaríið, eitthvað sem Gesti tókst ekki á mánudaginn, og greinilegt er að hún er að borða fyrir allavegana tvær manneskjur.

Einnig var kokkurinn okkar mikill húmoristi. Hann steikti allan matinn á stálplötum sem við sátum við og var með helling af partýtrikkum. T.d. tók hann heilan lauk í sundur og raðaði honum upp eins og eldfjall, sprautaði svo olíu ofaní og kveikti í, þ.a. að það gaus eldur upp úr laukfjallinu. Svo henti hann smjörklessu yfir borðið og kallaði hátt og snjallt "butterfly". Gestur bað um að fá steikina "medium rare" en þjónninn kallaði það "medium mú". Oh well, I guess you had to be there.

Óska annars strákunum okkar til hamingju með leikinn í dag - verst bara að RÚV skyldi ekki hafa getað sýnt hann á netinu.

föstudagur, september 05, 2003

Núna er uppáhalds lagið mitt þetta. Nonna mínum til mikillar armæðu.

Ég er að fara að laga linkasíðuna hérna til hliðar.

fimmtudagur, september 04, 2003

Sko, Mogginn fljotur ad taka vid ser. Eg myndi nu eigna sjalfri mer heidurinn af skubbinu samt ;)

þriðjudagur, september 02, 2003

Hahaha... ég dey. Ég var að horfa á VH1 og þar var auglýstur þátturinn Style Court. Þeir sem hafa séð TV Court þættina hérna úti vita hver hugmyndin er. Þ.e. að það er líkt eftir alvöru réttarsal og svo kemur alvörufólk þangað með sín vandamál og dómarinn dæmir í beinni. Nema hvað, í Style Court kemur fólk sem er hefur sérstakan fatastíl og dómarinn dæmir svo hvort fólkið sé "sekt" um ósmekklegheit. Svosem ekki í frásögur færandi nema fyrir að að réttarvörðurinn er hot beib að nafni Berglind Icey sem dyggir lesendur Séð og heyrt ættu að kannast við. Í sýnishorninu stígur hún fram í salinn og segir ábúðarfull "Order in the courtroom". Alltaf gaman að sjá Íslendinga vera að gera það gott. You go girl!

Næstbesta við þáttinn er svo slagorðið... "Because the way some people look is a crime!"

mánudagur, september 01, 2003

Ég sló tvær flugur í einu höggi í morgun þegar ég stakk Gessa af í 10km hlaupi og vann þar af leiðandi kippu af honum veslings Baldri, sem af einhverri óskiljanlegri ástæðu veðjaði á Gest, sennilega einhver norðlensk samheldni þar í gangi. Hlaupið var mjög skemmtilegt en við félagarnir þurftum að vakna snemma því hlaupið var ræst 7:45. Það voru ca. 10.000 manns í hlaupinu og var hlaupið þráðbeint eftir sléttum vegi. Hlaupið var hins vegar erfitt því vegurinn var mjög hæðóttur og var maður því alltaf að hlaupa upp eða niður brekku. Svo var náttúrulega um 30 stiga hiti, sem hjálpaði ekki.

Ég og Gestur mættum á réttum tíma í hlaupið en fannst við vera heldur þungir á okkur við rásmarkið og föttuðum þá að við höfðum báðir gleymt að fara á klósettið. Við tókum því á rás á næsta kamar en þar reyndist vera um 20 manna röð. Röðin gekk nú frekar hratt og við lukum okkar verkum fljótt og vel. Þegar út af kömrunum var komið sáum við hins vegar að það var búið að ræsa hlaupið og allt liðið komið af stað. Við töpuðum því þarna um 2 dýrmætum mínútum og vorum fyrstu 5 mínúturnar að berjast í gegnum ös af gamalmennum, "big mamas" og fólki með ungabörn. Ég náði þó að klára hlaupið á um 48-50 min en Gestur var á 52,5 min.

Eftir hlaupið skelltum við okkur svo í vatnsrennibrautagarðinn Wildwater og hugsuðum okkur gott til glóðarinnar. Það var hins vegar svo stappað af fólki að við þurftum að bíða í 45 min eftir hverri ferð og fórum því bara í tvær brautir.

Góð helgi búin og nú teku við "lernen, lernen, immer lernen".