Jæja, þá er ég búin að kaupa allar jólagjafirnar. Tók mig til og verslaði allar í einu á internetinu á þessari síðu. Nú geta vinir og vandamenn farið að skemmta sér við að geta sér til um hver fær hvað.
sunnudagur, nóvember 30, 2003
laugardagur, nóvember 29, 2003
Love the Holidays
Mikið ofsalega er fínt að fá þakkargjörðarfrí. Það er komin almenn jólastemmning hérna sem einkennist af miklum og góðum mat og almennu letilífi hjá okkur en hjá hinum almenna Kana er þetta stærsta verslunarhelgi ársins. Umferðin var svo mikil að aðal mollinu hérna var lokað á tímabili í dag og ekki fleirum hleypt inn. Við höfum hins vegar verið mikið í Kensington höllinni, spilað, borðað og passað litlu prinsessurnar. Ofsalega fínt að hafa smá hátíð núna til að hita upp fyrir jólin og renna sér inn í jólastemmningu og undirbúning. Jólalögin eru komin á fóninn, búið að kveikja á kertum, bara eftir að hita kakó og svo... læra!
fimmtudagur, nóvember 27, 2003
Gleðilega hátíð
Við óskum lesendum nær og fjær gleðilegrar þakkargjörðar. Í tilefni dagsins verðum við í Kensington höllinni þar sem við munum matreiða kalkúnaveislu. Skv. hefðinni fær Gestur þann heiður að fara með hendina inn í kallann og ná í innyflin (ooooj!), við Lena gerum sósuna og meðlætið og Nonni er sérlegur aðstoðarmaður og barnapassari. Þakkargjörðin er hefð sem ég gæti alveg hugsað mér að taka með mér heim þegar ég flyt heim. Rétt eins og Valentínusardagurinn, nei oj... svei þér Valdís Gunnarsdóttir!
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
Wild Boys
Við skötuhjúin ásamt Gesti fórum á mögnuðustu tónleika sem ég hef farið á í langan tíma á föstudaginn. Það voru engir aðrir en ofurtöffararnir í Duran Duran sem stigu á stokk í The Tabernacle, 2500 manna tónleikasal þar sem lengsta fjarlægð frá sæti á svið er ca. 20 metrar. Það seldist upp á tónleikana á 45 sekúndum þegar miðarnir fóru í sölu á Ticketmaster þannig að við fengum að sjálfsögðu ekki miða þar 20 mínútum eftir að sala hófst. Við redduðum okkur hins vegar miðum eftir miklum krókaleiðum og gegnum sambönd.
Húsið opnaði sjö og þegar við mættum á staðinn klukkan hálf sjö var komin svona tveggja kílómetra löng röð. Við létum okkur samt hafa það og náðum þessum fínu sætum (reyndar eru engin slæm sæti á þessum tónleikastað) með gott útsýni yfir sviðið. Við þurftum svo að bíða í einn og hálfan tíma eftir goðunum, en það var engin upphitunarhljómsveit. Tímanum eyddum við í bjór- og hvítvínsdrykkju en það fékkst þetta líka fína Chardonnay á barnum. Rétt fyrir níu stigu svo gæjarnir á stokk og þvílík upplifun. Þeir eru greinilega alveg að átta sig á því hvað það er sem fólk er komið til að sjá. Þeir eru næstum því með sömu greiðslur og pössuðu sig á því að vera í fötum sem hefðu alveg gengið 1985. Ég er m.a.s. ekki frá því að Nick Rhodes hafi verið málaður eins og í den og Andy Taylor var eiginlega bara nákvæmlega eins með sömu klippingu og Miami Vice sólgleraugu. Sviðsljósin voru ekta 1985 og lang flest lögin voru gömlu Duran Duran smellirnir og af tveggja tíma dagskrá voru kannski 5 ný lög. Þeir náðu gjörsamlega gömlu Duran Duran stemmningunni án þess þó að vera eitthvað 80s hallærislegir eða eins og þeir væru örvnæntingarfullt að halda í eitthvað sem var fyrir 20 árum.
Ég verð samt að segja að ég verð aðeins að endurskoða afstöðu mína til hljómsveitarmeðlima. Ég var (eins og örugglega flestar stelpur) mjög ástfangin af John Taylor á sínum tíma og stefndi í alvöru að því að fara til Englands og giftast honum í framtíðinni. Hins vegar verður að segjast að John hefur elst ákaflega illa og er orðinn hálf útlifaður núna. Hann er líka greinilega "hressi" gæinn í bandinu og var alltaf að koma upp að öðrum hljómsveitarmeðlimum að stofna til svona "mooves" með þeim (eins og að spila á móti Andy í einn takt og svo áttu þeir að snúa baki í hvorn annan). Andy Taylor var nú aldrei hátt skrifaður hjá mér og mér fannst eiginlega hálf krípí hvað hann var nákvæmlega eins. Gestur gekk svo langt að segja að hann væri beinlínis ógeðslegur. Hins vegar var Simon Le Bon ofsa flottur, greinilega í góðu formi og hélt uppi brjáluðu stuði. Hefur greinilega bara batnað með árunum og húsið gjörsamlega trylltist þegar hann söng Wild Boys með tilheyrandi mjaðmahnykkjum... mmmm. Roger Taylor alltaf jafn krúttlegur og pínu dularfullur sem gerir hann bara spennandi og Nick stóð sig vel á tveggja hæða, L-laga hljómborðinu með aflitað hár og í full make-up.
Áhorfendur voru mjög athyglisverðir. Meðalaldurinn var svona fimm til tíu árum eldri en við og ég hef sjaldan séð jafn mikið af fólki sem þarft gjörsamlega að fá make-over. Ég bjóst reyndar við að sjá fleiri í 80s stemmningunni með hliðartagl, bleikt gloss og grifflur en það voru mjög fáir þannig. Hins vegar var mikið af konum í litríkum flauelsskyrtum og rykktum flauelsbolum. Hef ekki séð svona mikið flauel í langan tíma (og langar ekkert til þess)... hvaðan kemur þetta? Hins vegar er óhætt að segja að áhorfendur hafi verið vel með á nótunum og ég er ekki viss hvort hellan og suðið í eyrunum, sem við vorum öll með í tvo daga á eftir, hafi stafað af tónlistinni eða öllum píkuskrækjunum.
föstudagur, nóvember 21, 2003
White men can´t play
Ég skellti mér í gærkvöldi á leik með körfuboltaliði skólans og varð vitni af stórum sigri minna manna. Augljóslega voru nánast eingöngu svartir menn inná vellilinum en reyndar fengu nokkrir bleiknefjar að spreyta sig í nokkrar mínútur, en gerðu nú lítið annað en að þvælast fyrir. Einn hvítingjanna var algjör risi, sennilega um 215 cm metrar á hæð, en var lélegasti körfuboltamaður sem ég hef á ævinni séð. Hann hitti ekki einu einasta skoti, boltanum var alltaf stolið ef hann reyndi að dripla og svo gat hann ekki einu sinni gripið boltann í fráköstum. Uppblásin brúða hefði sjálfsagt gert meira gagn á vellinum heldur en hann.
Það er náttúrulega ljótt að gera svona grín að svona einstaklingum, en mér finnst bara magnað hvað svertingjar virðast vera miklu betri en við hvítlituðu í íþróttum - nema náttúrulega í fótbolta og snóker!
miðvikudagur, nóvember 19, 2003
Furðufrétt
Mér finnst fréttaflutningur Moggans alltaf að verða skrýtnari og skrýtnari... Eins og hún hafi bara skipt um líf og heiti bara eitthvað allt annað eftir að hún giftist prinsinum.
Veröld/Fólk | AP | 19.11.2003 | 15:25
Jarlsfrúin af Wessex komin heim
Konan, sem var Sophie Rhys-Jones áður en hún giftist Játvarði prinsi árið 1999, yfirgaf sjúkrahúsið þar sem hún hefur dvalið eftir að hún ól frumburð sinn og prinsins. Fór hún á heimili þeirra hjóna nærri Windsor-kastala, sem er dvalarstaður Englandsdrottningar, móður Játvarðar, í helgarleyfum drottningar vestur af Lundúnaborg. Frumburðurinn, lítil prinsessa, er enn á sjúkrahúsi þar sem hún mun jafna sig enn um sinn eftir ótímabæra fæðinguna fjórum vikum fyrir tímann. Að sögn móðurinnar, sem nú er jarlsfrúin af Wessex, líður barninu vel og tekur það góðum framförum. Hún sagði jafnframt að ekki væri enn búið að ákveða hvaða nafn prinsessan litla muni bera.
Chicago
Aftur tókst okkur skötuhjúunum að leigja herfilega mynd í gærkvöldi. Í þetta skipti var það óskarsverðlaunamyndin Chicago. Svo sum ágætlega gerð en alveg ótrúlega leiðinleg. Rene Zellweger hefur álíka mikla útgeislun og svarthol.
Annars erum við að fara á Duran Duran á föstudaginn og hlökkum náttúrulega mikið til að sjá goðin. Þeir eru náttúrulega ofsa svalir og ég man ennþá eftir því þegar Simon Le Bon stökk frá á sviðið á Live Aid tónleikunum.
þriðjudagur, nóvember 18, 2003
Overriding the Algorithm in the Matrix
Við skötuhjúin vorum að horfa á DVD mynd í gær. Við sáum myndina The Italian Job sem verður að segjast að er alveg afskaplega metnaðarlaus mynd. T.d. þegar þrír bílar voru að keyra var verið að svissa á milli fjögurra ökumanna og handritið var svo lélegt að leikararnir voru stundum mjög vandræðalegir að segja línurnar sínar. Það sem hins vegar angraði mig mest við þessa mynd, og reyndar margar aðrar, er hvað hún var ofsalega mikið að reyna að vera high-tech án þess að vera með minnstu grunnatriði á hreinu. Það virðist vera að margir leikstjórar/handritshöfundar haldi að myndin sé orðin high-tech ef notuð eru nógu tæknilega "flókin" orð. Orð eins og "Algorithm", "Matrix" og "Blueprint" eru sérlega vinsæl í þessu samhengi.
T.d. sagði ein söguhetja í Italian Job setningu svipaða "I broke into their system matrix and overrode their transportation algorithm with my kick ass algorithm". Þennan "kick ass algorithm" til að eyðileggja umferðarkerfi Los Angeles hristi viðkomandi fram úr erminni á parti úr degi. Einnig var mjög snjallt hvernig þau gátu með því að ganga um þrjú herbergi með litla myndavél, sem komst fyrir í barmnælu, orðið sér úti um "Technical Blueprint" af öllu húsinu. Þetta "Technical Blueprint" var semsagt þrívíddarmynd af öllu saman, með öllum leiðslum og nákvæmum mælingum á öllum fjarlægðum, hæð og breidd. Svo gat viðkomandi bara ýtt á "Enter" á lyklaborðinu og þá kom upp nákvæmlega sú mæling sem viðkomandi var að leita að, t.d. þykkt hjólbarða á bíl. Snilld!
mánudagur, nóvember 17, 2003
Pabbarnir klikka ekki
Pabbar okkar Nonna eru þvílíkt að standa sig. Þeir ætla að koma út og vera við útskriftina okkar :) Er strax byrjuð að plana alls konar skemmtilegheit til að gera með þeim þegar þeir koma. Ég var nú alls ekkert búin að gera ráð fyrir að hafa einhvern úr fjölskyldunni á staðnum þegar ég útskrifast svo það verður ekkert smá næs að vita af pabba úti í sal þegar ég geng á sviðið í skikkjunni og með dúskhattinn flotta.
Jæja, best að snúa sér að bókunum ef þessi útskrift á að verða að veruleika.
sunnudagur, nóvember 16, 2003
"Að athöfninni lokinni fóru fimm vörubílar, hlaðnir listaverkum eftir Árna (Johnsen) sem hann hefur unnið að meðan hann dvaldi í fangelsinu á Kvíabryggju." (www.mbl.is)
Hugsum adeins um thetta... FIMM VORUBILAR!
föstudagur, nóvember 14, 2003
Eftir miklum krókaleiðum og vesen þá fengum við loksins miða á tónleika í The Tabernacle þann 21. nóvember. Hverjir eru að spila gætu þá einhverjir spurt? Það eru engir aðrir en kóngarnir sjálfir í Duran Duran sem munu stíga þar á stokk. Ég staðhæfi að þessi hljómsveit er í augum minnar kynslóðar það sem Bítlarnir voru í augum foreldra okkar, nema kannski fyrir þessa fáu sem spiluðu með hinu liðinu og héldu með Wham.
The Tabernacle er frekar lítið tónleikahús og við fengum sæti á gólfinu sem þýðir að við verðum bara í nokkurra metra fjarlægð frá Simon, Nick, Andy, Roger og síðast en ekki síst... John Taylor. Hann var náttúrulega flottastur, sérstaklega var aflitaði lokkurinn í síttaðaftan klippingunni flohohohottur. Er að skoða Duran Duran síðu og er þá ekki rólegi Roger Tyler orðinn langmyndarlegastur. John er eiginlega pínu útlifaður. Það er það sem áður var.
þriðjudagur, nóvember 11, 2003
Snökt snökt
Ég var að klára síðasta brauðost bitann sem Ómar og Edda komu með frá mömmu og pabba. Moms & Pops vita alltaf hvað mér finnst best :) Nú er bara að bíða næstu heimferðar eða gestakomu þangað til ég fæ aftur íslenskan brauðost... og skyr... og íslenskan fisk... namm.
Jæja, þá færist vetur yfir hér í Atlanta. Ekki þar með sagt að sólin skíni ekki og að það sé beint orðið kalt. Hins vegar er orðið nauðsynlegt að fara í eitthvað utanyfir stuttermabolinn áður en farið er út á kvöldin og snemma á morgnana. Ég græt það nú ekki þar sém ég á nýja, röndótta peysu.
Við fórum á alveg yndislega mynd í gær. Love Actually er bresk mynd með alveg stórkostlegum leikarahóp, jólaívafi og segir nokkrar litlar ástarsögur ásamt sögu af útbrunnum poppara sem er að reyna að meika'ða. Mynd sem mig langar að eiga á DVD svo hægt sé að kúra sig uppi í sófa með kakóbolla um jólaleytið og horfa á hana.
mánudagur, nóvember 10, 2003
Nýjar myndir!!!
Sama lykilorð og venjulega.
Gestir í Atlanta - Myndir frá heimsóknunum sem við fengum í okt og nóv
LA Ferð - Var búin að birta eitthvað af myndum en nú er restin komin inn. Enjoy the whole experience!
Chris Rock rokkar
Við skelltum okkur á uppistand hjá grínaranum Chris Rock í gærkvöldi og fór kappinn á kostum, eins og við mátti búast. Hann gerði óspart grín að Bandaríkjamönnum og Bush og var mjög pólitískur. Einnig rakkaði hann hjónabandið niður, en benti á að valið stendur á milli "Married and bored or single and lonely". Fyndnast var reyndar þegar hann gerði grín af svertingjum og hvers vegna þeir ættu ekki meiri peninga en raunin er - þeir elska að kaupa fáránlega hluti, svo sem 2000 dollara hjólkoppa og P Diddy föt.
Við vorum annars nokkuð viss um að P Diddy hafi verið á fremsta bekk. Gaurinn var allavegana svakalega líkur honum og svo voru stæðilegir lífverðir sitthvorum megin við sætaröðina hans.
sunnudagur, nóvember 09, 2003
föstudagur, nóvember 07, 2003
Ef það er satt sem Gwyneth Paltrow heldur fram í viðtölum að það hafi veri henni að kenna að hún og Brad Pitt hættu saman þá skil ég ósköp vel að hún sé nett þunglynd. Ímyndið ykkur að vera með Brad Pitt og hafa verið aðilinn sem klúðraði því!!! Svo situr hún uppi með Chris Martin sem er eflaust ágætis grey en stenst engan veginn samanburðinn.
Rósa kom líka með athyglisverða hugleiðingu einu sinni. Ætli Jennifer Aniston geti nokkurn tíman vanist því að vera gift honum? Ætli hún sé ekki alltaf bara "Sjiiii, ég er gift Brad Pitt. Vúhú!".
Ástæðan fyrir því að ég er að velta þessu öllu saman fyrir mér er sú að Anna Þorbjörg fór á Matrix um daginn og á undan var sýnt úr nýjustu mynd Brads, Troy. Þar hleypur hann um á lendarskýlu og hnyklar vöðvana. Ég er einmitt að fara á Matrix á eftir og veit ekki hvort ég hlakka meira til að sjá endinn á Matrix trilogíunni eða Brad fáklæddan.
fimmtudagur, nóvember 06, 2003
Hversdags...
Þá eru gestirnir farnir og grámóskulegur hversdagsleikinn tekinn við í orðins fyllstu merkingu. Búið að vera sólbaðsveður allan tíman sem gestirnir voru hérna en nú er rigning og skýjað... snökt.
Annars er nú ýmislegt að gerast og margs að hlakka til. Ekki nema rúmur mánuður í útskrift sem þýðir að það er mánuður eftir af skólanum. Þar sem ég er búin að vera að skemmta gestum í tvær vikur er alveg nóg að gera í bókunum hjá mér. Svo er ég að fara með Lenu og Lauren (sem leigir hjá Mayu nágrannakonu G&L) á Monsters Inc. on Ice í kvöld. Á sunnudaginn er Chris Rock með uppistand í Fox Theatre og við ætlum á það og svo er ég að velta fyrir mér hvort ég eigi að fara á Singapore Sling á þriðjudaginn. Hmmm... sé núna að það er alveg meira en nóg af skemmtilegum hlutum að gerast.
Þess má líka geta að Hulda Clara er loksins farin að segja Brynja (eða Bía) en hingað til hefur hún ýmist látið sér nægja að benda á mig eða kallað mig bara Nonno líka. Talandi um Kensington Klíkuna, þá fórum við Lára svo illa með þau hjónakornin í kana á mánudaginn að ég held að Gestur sé ennþá að jafna sig. Ótrúlegt hvað þeim gengur illa alltaf hreint í kana...
