sunnudagur, ágúst 31, 2003

Afar skemmtileg helgi er næstum að baki. Við erum nefnilega í fríi á morgun í tilefni verkalýðsdagsins (labour day).

Á föstudaginn fórum við með þeim mæðgum, Lenu og Huldu Clöru, í outletið og Wal-Mart að sinna smá erindum og þegar við skutluðum þeim svo heim beið Gestur með þessa líka fínu veislumáltíð. Kjúkling, nautakjöt, vísundakjöt og rækjur með fullt af grænmeti á teinum og allt með. Eftir þessa veislu skelltum við okkur í Virgina Highlands djammhverfið þar sem við hittum Adilku, dóminíkönsku vinkonu mína, og Jason, bandarískan unnusta hennar, á kránni. Ég verð að segja að mér finnst alveg þess virði að þola allan hitann hérna fyrir það að geta setið úti á pöbbnum og drukkið hvítvín/bjór á kvöldin.

Gærdagurinn var frekar rólegur, lært og settar inn myndir á netið (já, þetta tekur ótrúlegan tíma!). Um kvöldið var okkur svo aftur boðið í mat til Gests og Lenu en nú var boðið aðeins stærra þar sem þarna voru íslensk hjón, ásamt tveimur börnum sínum, sem eru í rannsóknarleyfi hérna. Góður matur og skemmtilegar samræður. Takk fyrir okkur!

Dagurinn í dag var svo tekinn snemma þar sem við hittum Matt, Dan og Lisu klukkan hálf tíu til þess að fara í Six Flags. Oh my god, ég var sko búin að gleyma hvað mér finnst rússíbanar skemmtilegir. Þeir sem hafa farið á skíði með mér eða í fjallgöngur vita kannski að ég er "smá" lofthrædd en einhvern vegin smitast það ekki yfir á tívolítæki. Við gerðum ekkert annað en að fara í rússíbana í allan dag og nægði varla dagurinn til. Ekkert smá gaman. Skemmtilegastur var Superman en þar er sætunum hallað um 90° svo að maður liggur eiginlega og horfir beint niður. Hugmyndin er að maður sé að fljúga eins og Superman. Ansi geggjað.

Þegar garðurinn lokaði skelltum við okkur svo á Rocky Mountain sem er eins konar stúdenta hangout á campusnum. Þar er hægt að fá "bucket of beer" fyrir $8 og ódýran mat. Kjams kjams....

Þess má svo geta að lokum að Matt færði mér Brides blað til að lesa. Honum er mikið í mun að ég týni mér nú alveg í brúðkaupsundirbúningi. Nonni vann líka þennan fína Georgia Tech körfubolta í leik í Six Flags... veivei!

laugardagur, ágúst 30, 2003

Og hérna eru myndirnar sem teknar voru með neðansjávarmyndavélinni í köfunarferðinni sem við fórum í um síðustu jól. Geggjað.

Köfun - des 2002

Sami díll með lykilorðið.

Nýjar myndir!

Jæja jæja, það sem allir hafa verið að bíða eftir. Nýjar myndir!

Music Midtown 2003

Stelpudjamm

Frábær ferð í Þaralátursfjörð

Lykilorðið er það sama og venjulega. Ef ykkur vantar það er bara að senda mér póst en til þess að flýta fyrir er það líka það sama og MSN-nafnið mitt fyrir þá sem vita það.

föstudagur, ágúst 29, 2003

Það er nú bara ansi gott að vera komin aftur til Atlanta. Við vorum næstum búin að gleyma hve íbúðin okkar er frábær, þó svo að sundlaugin sé ekki ennþá tilbúin, aargh. Reyndar veitti alls ekki af sundlaug núna því það er um 30-35 stiga hiti upp á hvern dag og alveg svakalega rakt. Eins og Brynja hefur sagt frá að þá er nóg að gera hjá okkur um helgina. Dagskráin byrjar á eftir með ferð í Outletið, þar sem hægt er að kaupa gæðagripi á útsöluverði, og svo býst ég við að við kíkjum út með henni Adilku í kvöld. Fyrir þá sem ekki vita er Adilka vinkona Brynju frá Dóminíkanska lýðveldinu. Á morgun er okkur svo boðið í mat til Gessa, Lenu og HC og einnig verða á staðnum íslensk prestshjón sem eru víst ný flutt hingað. Það verður spennandi að heyra hvað þau eru að gera hérna í biblíubeltinu. Á sunnudaginn er svo meiningin að fara í Six flags skemmtigarðinn og á mánudaginn mun ég taka aumingja Gesti í nefið í 10 km hlaupi og hirða bjórkippu af Baldri í leiðinni.

Ef við horfum aðeins lengra fram í tímann að þá er Dr. Andri að spá í að kíkja í heimsókn í lok september og munum við þá vafalaust reyna að finna tónleika með einhverjum heavy metal hljómsveitum. Pabbi og Edda ætla svo að kíkja til okkur í lok október en hugsanlegt er að pabbi sé að fara á ráðstefnu einmitt þá hérna í Atlanta, how convinient. Við Brynja ætlum svo að bregða undir okkur betri fætinum í október og fara í heimsókn til Önnu og Palla til LA. Þar verður vafalaust mikið um dýrðir en hápunkturinn verður væntanlega körfuboltaleikur á milli mín og Brynju annars vegar og Önnu og Palla hins vegar. Við Brynja ætlum okkur 3 stig út úr leiknum og ég mun því leggja mikla áherslu á að stoppa Önnu í sókninni. Brynja mun aftur á móti pakka Palla saman í vörninni og sjá svo um að raða niður þriggja stiga körfum í sókninni. Mikið verður gaman þá.

Í dag er síðasti séns fyrir Nonna að blogga ef hann vill ekki láta henda sér út af blogginu. Hann þarf svo að blogga a.m.k. einu sinni í viku til að halda statusnum.

Ég sé nú svoldið eftir að hafa hype-að upp hávöxnu söguna því hún er eiginlega ekkert sérstaklega merkileg. But here goes...

Þegar við komum í check-innið á Gatwick í London þá leit check-in daman vorkunnaraugum á Nonna og sagðist vera búin með öll neyðarútgangs sætin. Þ.e. þau sem eru með auknu fótaplássi. Hún setti samt athugasemd með nafninu hans í tölvuna um að hann væri 6.3" á hæð. Svo þegar við komum að brottfarar hliðinu þá er bara búið að færa okkur til í betri sæti og við sátum við neyðarútganginn með 2 metra fótapláss sem kom sér mjög vel í 8 tíma fluginu. Það fyndna var að þetta er greinilega stundað því ég var sú eina undir 1.90 m á hæð sem sat í þessari röð.
Það sem læra má af þessu er að það getur komið sér vel að eiga hávaxinn kærasta því annars hefði ég aldrei fengið svona gott fótapláss.

Þetta er eiginlega frekar ömurleg saga sé ég núna þegar ég er búin að skrifa hana niður... úff.

þriðjudagur, ágúst 26, 2003

Eitt enn, búin að fá myndir frá sumrinu úr framköllun og það er heilmikið af skemmtilegum myndum þarna. Heillöng myndasyrpa frá Þaralátursfjarðaferðinni og svo eru nokkrar ansi góðar djammmyndir sem ég veit ekki hvort séu allar birtingarhæfar. Ég set þetta inn þegar ég verð búin með heimaverkefnabunkann sem ég þarf að skila á fimmtudaginn.

Ég á ennþá eftir að segja frá því af hverju það er gott að eiga hávaxinn kærasta (fyrir utan náttúrulega the obvious!).

Samkvæmt nýjustu fréttum eru Gestur og Lena komin með þokkalega celeb nágranna en DeCalb fangelsið er einmitt í næsta nágrenni við þau.

Annars eru MBA nemar hlægilegt fólk. MBA nema er yfirleitt hægt að þekkja á því að þau eru í sérsaumuðum stuttermaskyrtum þar sem á stendur Georgia Tech MBA. Nú ef þú skyldir nú ekki spotta þau á þessu þá eru þau með heimatilbúin skilti með nafni og "MBA Student" skrifuðu á sem þau setja á borðið sitt í tímum. Jafnvel þótt enginn annar geri það. Ég hef reyndar aldrei áður verið með þeim í tímum en Nonni sagði mér að skemmtilegast væri samt þegar kemur að því að flytja fyrirlestra í tímum. Þá mæta þau í jakkafötum/drögtum til að flytja fyrirlestrana sína jafnvel þó úti sé 35 stiga hiti og m.a.s. kennarinn er í stuttbuxum! Silly people.

Annað skemmtilegt úr skólanum í dag sem tengist reyndar MBA nemum líka. Kennarinn spurði nefnilega út í bekkinn og einn MBA nemanna flýtti sér að svara. Svo sagði kennarinn að þetta hefði nú verið mjög gott svar og þá sá ég að gaurinn sneri sér að vini sínum og gerði svona JESS!! hreyfingu. Ég þarf greinilega að fara að leggja meiri metnað í frammistöðu mína í tímum.

mánudagur, ágúst 25, 2003

Þá er skólinn kominn á fullt og nóg að gera. Hittum Matt og Dan, amerísku vini okkar, í hádeginu í skólanum í dag og það voru nú aldeilis fagnaðarfundir. Kærastan hans Dans er í heimsókn frá Seattle þannig að það stendur líka til að vera dugleg í social lífinu þessa vikuna. Á miðvikudaginn ætlum við á Atlanta Braves Baseball leik, á fimmtudaginn í Dogwood Brewery ($3 fyrir eins mikinn bjór og þú getur í þig látið milli 6 og 8, glasið fylgir með) og svo Six Flags skemmtigarðurinn á laugardaginn. Þetta verður löng helgi en það er Labour Day á mánudaginn og þá ætla þeir Gestur og Nonni að fara í eitthvað hlaup en fyrir að taka þátt í því fá þeir aðgang í Six Flags White Water vatnsrennibrautagarðinn svo aldrei að vita nema við kíkjum á það líka. Skemmtilegt.

Ég ætla að reyna að draga unnustann í Best Buy á eftir til að kaupa stafræna myndavél en mig langar að taka Önnu Beib Cali-Girl mér til fyrirmyndar og vera duglegri að taka myndir fyrir aðdáendur heima. Þar sem Gestur og Lena búa rétt hjá Best Buy er svo upplagt að skella sér í smá heimsókn til þeirra í leiðinni og aldrei að vita nema Gessi skelli nokkrum pullum á grillið. Kannski við tökum nokkra ölla með okkur úr ísskápnum. Við eigum nefnilega nóg af svoleiðis þar sem leigjandinn okkar lét sér ekki nægja að ganga mjög vel um, þrífa vel og skilja eftir sjónvarp heldur skildi hann eftir fullan ísskáp af bjór. What more can a girl ask for?

Ég skrifa meira um allt sem ég lofaði í síðasta bloggi seinna. Þarf víst að fara að kíkja á heimadæmin ef ég á að komast í allt þetta skemmtilega sem ég er búin að telja hérna upp.

Fyrir aðdáendur Nonna má svo geta þess að ég er búin að hóta honum að gera þetta að minni einkasíðu ef hann fer ekki að taka sig á. Það má því búast við skemmtilegheitum frá honum á næstunni.

sunnudagur, ágúst 24, 2003

Þá erum við komin aftur til Atlanta. Ferðin gekk mjög vel og Gestur tók á móti okkur á flugvellinum hérna. Fórum heim með töskurnar og til að kíkja á íbúðina. Leigjandinn hefur farið alveg sérlega vel með hana og m.a.s. þrifið skv. okkar standard. Hann skildi líka sjónvarpið sitt eftir þannig að nú eru sjónvarpslausu plönin okkar farin út um þúfur.
Eftir þetta fórum við beint í Kensington höllina en þar biðu Hulda Clara, Lena og Maya nágrannakona með kvöldmat. Hulda er komin með fullt af nýjum númerum og Gestur vildi meina að hún hefði brugðist öðruvísi við okkur en ókunnugu fólki þannig að hún virðist þekkja okkur aftur. Við erum að sjálfsögðu frekar sátt við það.
Svo er bara að koma öllu dótinu okkar fyrir og skóli af fullum krafti á morgun.

Meira um allt þetta ásamt steiktum flugþjónum, færiböndum og kostinum við að að vera 190 sm á hæð... síðar.

Brynja og Nonni

sunnudagur, ágúst 17, 2003

Jæja, þá styttist í að við höldum á vit ævintýranna í Atlanta. Aðeins rúmir fimm dagar til stefnu og við að komast í óneiviðeigumeftiraðgerasvomargtáðurenviðförum-gírinn.

Það má búast við tíðari færslum á þessum vef eftir að við förum út. Bæði finnst mér hálf kjánalegt að halda dagbók um allt sem við gerum þegar fólkið sem les það gerði hlutina með okkur og eins er ekkert geðveikt freistandi að setjast fyrir framan tölvuna á kvöldin til að blogga þegar ég hef setið fyrir framan tölvuna í vinnunni allan daginn.

Jæja, nóg um það í bili en fylgist spennt með eftir viku eða svo þegar við verðum komin aftur til US of A!

fimmtudagur, ágúst 07, 2003

Hei, myndir úr partýinu sem við vorum í á sunnudaginn hjá Önnu og Freysa eru á katrin.is. Nokkrar góðar eru hér og hér. Skrýtið að hún hafi ekki tekið myndir af mér?

Annars var þetta geggjað partý sem endaði svo í geggjuðu stuði á hb. Anna og Freyr og aðrir íbúar Bragagötu 23 eiga hrós skilið fyrir frábært framtak og ég hlakka til að mæta aftur að ári. Fyrst ég er byrjuð að tala um partý helgarinnar má ekki gleyma "útilegu í borg" hjá Ólöfu á laugardaginn sem var massamassa. Vonandi fæ ég myndir frá stelpunum frá því en það var tekin nokkuð góð myndasyrpa þar.