fimmtudagur, september 27, 2007

Hey Ben!

Amma var að hringja og spá í hvenær þú ætlaðir að skila jakkanum hennar?

miðvikudagur, september 26, 2007

Eitt grunnt

Mér finnst Keira Knightley alveg ágætis leikkona en guð minn góður hvað hún er leiðinleg. Hún er sífellt að nöldra og tuða um hvað hún þoli ekki að vera sökuð um að vera með anorexíu, hún sé sko líka með vandamál, að hún geti ekki gert að því að vera falleg og blablabla... Ef einhvern langar að pirrast með mér þá er þetta góð lesning.

Ég er að velta fyrir mér hver röðin sé á ástæðum þess að Jessica Biel sé með JT:
1) Hann er super hot.
2) Hún fær massa athygli út á sambandið.
3) Hann heillar hana á andlega sviðinu.

Ég myndi segja 213, hugsanlega 123.

þriðjudagur, september 25, 2007

Rosalega er mikið af Dönum hérna!

Nonni átti setningu ferðarinnar á laugardaginn þegar hann kom með þessa athugasemd. Sett í samhengi þá var hún alveg að gera sig en svona ein og sér þá var þetta dáldið mikið fyndið.

mánudagur, september 17, 2007

Til útlanda!

Þá er Baldur litli kominn til útlanda í fyrsta skipti. Nánar tiltekið til Kaupmannahafnar. Hann stóð sig alveg eins og hetja á ferðalaginu og var ekkert nema yndislegheitin alla ferðina. Mömmu sinni og ömmu til mikillar ánægju.
Við fórum í göngutúr í gær og heimsóttum m.a. litlu hafmeyjuna sem Baldur svaf reyndar af sér en pabba hans fannst þeim mun tilkomumeiri.Við bendum svo á að hlekkir á spássíu hafa verið uppfærðir. Nýjasta Moggabloggaranum hefur verið bætt við. En hann verður að vera duglegri að skrifa ef hann ætlar að viðhalda status. Anna Þorbie má líka alveg fara að láta í sér heyra... vér söknum hennar.

þriðjudagur, september 11, 2007

Meiri...

... myndir á myndasíðunni góðu. Bæði frá ágúst og eins frá gæsun og giftingu Hjördísar vinkonu.

Peace out!