föstudagur, maí 28, 2004
þriðjudagur, maí 25, 2004
Ha ha!
Mikið er ég nú klár. Er bara búin að skella upp nýrri síðu eins og ekkert sé og stilla URL-ið. Svo er bara að bíða eftir að Konni komist í gírinn og þá fara allar nýju myndirnar inn.
Annars er allt fínt að frétta. Hlakka til að fara í brúðkaup til Maryland um helgina en hlakka samt eiginlega meira til að fara í IKEA í leiðinni. Það er alveg fáránlegt hvað ég hlakka mikið til. Svo hlakka ég líka til að hafa Nonna í Boston alla næstu viku... júhú!
mánudagur, maí 24, 2004
Uppfærsla
Jæja, þá er ég aðeins búin að laga bloggið mitt. En betur má ef duga skal... ég bið fólk bara að hafa þolinmæði með mér en þetta er allt að koma.
Troy... an Epic
Við fórum á Troy í gær. Ég verð að segja að ég er alveg sammála mörgum þeim gagnrýnum sem ég hef séð sem segja að það sé sennilega betra að horf á myndina án hljóðs því að samtölin og tónlistin eru algjör hörmung. Hins vegar skemmir það ekki fyrir aðalatriði myndarinnar, og því sem ég kom til að sjá, sem eru vöðvarnir á Brad Pitt og sem aukabónus þá var Eric Bana alveg ótrúlega flottur. Það verður líka að segja að Brad fær ekki margar stjörnur fyrir leik sinn í myndinni því hann var allt of amerískur greyið til að vera sannfærandi Akkiles. Hins vegar gerðist það í annað sinn á stuttum tíma að annar leikari stal algjörlega senunni af aðal stjörnunni og hélt myndinni eiginlega uppi. Þ.e. Eric Bana gerði það sem Ken Watanabe gerði í hörmunginni Síðasti Samúræjinn, og sýndi snilldarleik sem skyggði gjörsamlega á Brad (að ég tala ekki um Orlando). Ég er m.a.s. búin að fyrirgefa Eric fyrir Hulk (og þá er mikið sagt). Svo var ansi athyglisvert leikaraval almennt í myndinni en það var eiginlega hálfgert LOTR reunion þegar Boromir mætti líka á svæðið. Og hvað var málið með Hanson Brother look-alike gaurinn sem lék frændann í myndinni?!!
Annars er ég alveg komin með nóg af Epic myndum... virðist vera trend í Hollywood sem ég vona að gangi sem fyrst yfir. Þriggja tíma langlokur sem gera eiginlega bara það að undirstrika að aðal hjartaknúsararnir í Hollywood eru kannski ekki endilega bestu leikararnir... staðreynd sem ég vil helst ekki vita af.
laugardagur, maí 22, 2004
fimmtudagur, maí 20, 2004
Góður árangur
Kate Hudson náði af sér 27 kílóum á tveimur og hálfum mánuði núna nýlega. Nú hef ég ekki nema tæpa tvo mánuði fram að "The Big W" þannig að ég ætti að geta náð mér niður í svona 45 kíló!
þriðjudagur, maí 18, 2004
Gott raunveruleikasjónvarp
Ég er komin með nýjan uppáhaldsþátt, WB Superstar USA. Ég sat sem límd við skjáinn þegar þessi eftirherma af Idol fór í gegnum hljóðprufur og völdu svo úr alla lélegustu. Ótrúlegt hvað fólk trúir á eigin hæfileika án þess að hafa neina. Svo voru 12 valdir til að fara til Hollywood og eru svo látin fara gegnum útsláttarkeppni (eins og Idol nema ekki almenn kosning) og þeim er ekki sagt fyrr en í síðasta þætti að þau hafi verið valin vegna þess hvað þau eru léleg. Ég er strax komin með uppáhald, hana "Nina the Diva" eða eins og "Tripple Threat" eins og hún kallar sjálfa sig. Alveg frábært!
Svo er alveg fyndnast að fylgjast með dómurunum þykjast fíla fólkið í botn meðan þeir reyna að halda niðri í sér hlátrinum og eru í raun að gera grín að keppendum.
Prumpufýla
Það var einhver með í maganum nálægt mér í þriggja tíma flugferðinni í gær. Allavega gaus upp viðbjóðsleg prumpufýla á svona tuttugu mínútna fresti. Ég var alveg á fullu að reyna að fela hvað ég kúgaðist og reyna að veifa lyktinni í burtu en það er dáldið erfitt þegar fólk er í svona nánu samvígi. Æ, mér er alveg sama... viðkomandi getur bara skammast sín að vera að éta prumpumat rétt fyrir flug.
mánudagur, maí 17, 2004
SoBe... the place to Be
Ég hef áður talað um það hér á síðunni hvað SoBe er svalur staður. Við Nonni chilluðum vel þar og töntruðum með hinum strandabeibunum um helgina. Myndir þegar hin síðan verður komin upp en ég verð að segja að Karen Millen kjóllin stóð vel fyrir sínu.
Ég vil líka nota tækifærið og óska Gwynnie og Chris til hamingju með Epplið. Gwynnie getur loksins farið aftur á makróbíótíska mataræðið sitt.
fimmtudagur, maí 13, 2004
Skemmtilegt hótel?
Mikið er ég sátt við hótelið okkar. Rakst á skemmtilegar kynningarmyndir á netinu. Ein myndin sýnir einn mann með þremur konum uppi í rúmi og hin sýnir baðvaskinn fullan af froðu. Við skötuhjúin eigum eftir að fíla þetta í botn.
P.s. Veit að kommentakerfið er bilað og svo eru engin línubil en þetta er allt til bráðabirgða þangað til Konni hefur tíma til að setja upp hina síðuna aftur.
miðvikudagur, maí 12, 2004
Gelluplan
Jájá.. mín lofar bót og betrun en svo gerist ekki neitt. Ég veit ég er svikari.
Annars er það helst að frétta að ég er í skýjunum yfir að geta loksins notað tölvuna mína án þess að hún sé að frjósa stanslaust.
Svo er bara verið að undirbúa sig fyrir helgi á South Beach en Nonni bauð mér að kíkja niðureftir til sín um helgina í staðinn fyrir að fljúga hingað uppeftir. Nú er planið að vera massa gella vs. lúðinn sem ég var í síðustu ferð. Í þeim tilgangi hef ég sett nokkrar grunnreglur sem er stranglega bannað að víkja frá:
1. Ekki fara í langar gönguferðir á nýjum skóm og með enga sólarvörn, sérstaklega ekki fyrsta daginn.
2. Ekki liggja í tvo tíma sólarvarnalaus á ströndinni.
3. Ekki ætla að kaupa bikíní þegar komið er í fríið, mæta með það á staðinn (það mun þá vera í fyrsta skipti sem ég geri það!).
4. Ekki gleyma red hot sugamama Karen Millen kjólnum sem ég keypti í febrúar og hef ekki haft tækifæri til að nota... úhúhúúú...
mánudagur, maí 10, 2004
Back in business
Yoyoyo... búin að strauja tölvuna og er komin aftur í the blogging busineess. Dagurinn í dag fer reyndar allur í að setja inn nauðsynlegan hugbúnað og svoleiðis en svo má eiga von á ýmsum skemmtilegheitum frá mér ;)
miðvikudagur, maí 05, 2004
Tæknin er svikari
Nú er tæknin eitthvað að stríða okkur. Fyrst hrundu diskarnir í miðjum stúdentsprófum hjá Konna og verða ekki komnir í lag fyrr en eftir 24. maí þegar hann klárar stúdentsprófin (you go guy!). Af þeim sökum erum við mætt aftur á gamla staðinn. Svo komst vírus í tölvuna okkar og eftir að hafa fjarlægt hann virðast ýmsar netsíður, blogger þ.m.t., hættar að virka og tölvan hagar sér ennþá undarlegar en venjulega. Ég held því að ég sé loksins að fara að gera hina löngu tímabæru straujun um helgina. Skál fyrir því. Þetta gerðist svo náttúrulega allt saman á sama tíma og ég er búin að vera í blússandi bloggstuði. Ekki er öll vitleysan eins.
Jæja, betri helmingurinn er kominn heim (ég er að skrifa þetta á vinnutölvuna hans) og kominn tími til að sinna honum. Till leiter friends en ég veit ekkert hvenær ég kemst næst í að blogga meira.
Luv,
Brynz
P.s. Hver er sammála mér um að síðasti Friends þátturinn (ever!) hafi verið ömurlega leiðinlegur?


